Frjáls verslun - 01.10.2008, Síða 12
Fyrst þetta...
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 8 13
w
www.bgt.is
VIÐ ÞRÍFUM – ÞÚ VINNUR
Heildarlausnir í ræstingum og
hreingerningum fyrir fyrirtæki,
stofnanir og húsfélög.
Markaðsverðlaun ÍMARK 2008
voru veitt í hádeginu 5. nóvember í
Turninum við Smáratorg í Kópavogi.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, afhenti verðlaunin en þetta
var í 18. sinn sem verðlaunin voru
veitt.
Össur var valið Markaðsfyrirtæki
ársins 2008 en auk þess
voru Síminn og Vodafone til-
nefnd til verðlaunanna. Magnús
Geir Þórðarson, leikhússtjóri
Borgarleikhússins, var valinn
Markaðsmaður ársins 2008.
Það er ekkert krepputal hjá ZO-ON.
Fyrirtækið opnaði á dögunum nýja
sérverslun ZO-ON ICELAND í Kringlunni.
Verslunin sérhæfir sig í útivistar- og
íþróttafatnaði. Fyrirtækið hefur framleitt
útivistarfatnað fyrir íslenskar aðstæður í
rúman áratug.
„Með eigin verslun getum við þjónað
okkar viðskiptavinum enn betur,“ segir
Jón Erlendsson framkvæmdastjóri.
Vörur ZO-ON ICLAND eru hannaðar
til að standast íslensk veðurskilyrði og
hafa selst vel heima sem heiman. Nú er
sjónum í ríkari mæli beint að innlendum
markaði. Opnun sérverslunar í Kringlunni
er hluti af þeirri stefnumótun.
Edda Heiðrún Geirsdóttir, markaðsstjóri Össurar, hampar hér verðlaunum.
ÍMARK valdi fyrirtækið sem Markaðsfyrirtæki ársins 2008.
Össur markaðsfyrirtæki ársins
- Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri
Borgarleikhússins, markaðsmaður ársins
Elísabet Sveinsdóttir, formaður ÍMARK, Edda Heiðrún
Geirsdóttir, markaðsstjóri Össurar, Magnús Geir
Þórðarson, leikhússtjóri Borgarleikhússins, Petrea
Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri markaðssviðs Símans,
Björn Víglundsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs
Vodafone, og forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson.
Kaupmaður í Kringlunni. Jón Erlendsson
er framkvæmdastjóri ZO-ON.
ný verslun ZO-On