Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2008, Side 28

Frjáls verslun - 01.10.2008, Side 28
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 8 29 Hann leggur áherslu að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið sé ekki orsök þess sem gerðist á Íslandi. Hrun íslensku bankanna skýr- ist að hans mati af því sem gert var og ekki var gert heima á Íslandi. „Það þýðir lítið að benda á viðbrögð Seðlabankans á Íslandi og stjórnvalda í sjálfu bankahruninu eða viðbrögð breskra stjórnvalda,“ segir Henriksen. „Bankarnir voru komnir á hættusvæði löngu áður. Hættan vofði lengi yfir en svo verður hrunið alltaf með einhverjum hætti og ber einkenni taugaveiklunar. Það er greinilegt af viðbrögðum Breta.“ Henriksen segir og að það sé dæmigert að allir bankarnir hrynji samtímis. „Viðskiptavinir bankanna, jafnt eigendur innlána sem skuldu- nautar, uppgötvuðu að bankarnir áttu sér engan lánveitanda til þrautavara. Traustið á öllum fór um leið og einn féll,“ segir Henriksen. Henriksen segir og að bankabólan á Íslandi sé að öllu leyti dæmi- gerð fyrir samskonar bankabólur áður í öðrum löndum. Oft áður hefur hlaupið ofvöxtur í banka og þeir að lokum fallið með brauki og bramli. Svona bankabólur urðu til í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi á árunum kringum 1990 – áður en samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið var til. „Það eina sem er sérstakt við íslensku bankabóluna en að hún varð stærri en dæmi eru um áður. Bankar hafa aldrei áður náð að vaxa svo mikið samanborið við stærð hagkerfisins. Þess vegna er áfallið líka mikið,“ segir Henriksen. Hann segir eins og Storesletten að bankarnir hafi verið orðnir svo stórir að Seðlabanki Íslands réð hvergi nærri við að verja þá falli – og að eiginfé þeirra hafi reynst ótraust. Hræddir við frelsið En hvað gerðu bankamenn á Íslandi annað en þeir norsku? Hvað varðar norsku bankana hafa þeir ekki lagt í útrás svo nokkru nemi. Þó hefur Storebrand, sem auk annars rekur banka, reynt að ná fótfestu í Svíþjóð með miklum kostnaði. En norsku bankarnir hafa að mestu haldið sig heima um leið og erlendir bankar hafa haslað sér völl í Noregi. Nordea er að mestu Espen Henriksen, fræðimaður við hagfræðistofnun Óslóarháskóla. Kjetil Storesletten, prófessor í hagfræði við Óslóarháskóla. Thore Johnsen, prófessor í hagfræði við Verslunarháskólann í Björgvin.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.