Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2008, Side 39

Frjáls verslun - 01.10.2008, Side 39
40 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 8 Lísbet Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Lectura, hefur sérhæft sig í samskiptum á vinnustað en einn angi þeirra er einelti á vinnustöðum. Hún gerði fyrstu rannsókn sinnar tegundar á því efni á Íslandi. Sú rannsókn fékk m.a. tilnefningu til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands árið 2000. Lectura býður m.a. upp á námskeið fyrir fyrirtæki sem byggja á víðtækri þekkingu Lísbetar á sviði samskipta, reynslu hennar af heim- ildaöflun fyrir fyrrgreinda rannsókn og M.A. viðtölum við þolendur eineltis. Það túlka ekki allir einelti á sama hátt „Ég dreg upp mynd af einelti á þessum námskeiðum. Velti upp spurningunni hvað er einelti, með hvers konar hætti það birtist og hverjar afleiðingarnar geta orðið. Það túlka ekki allir einelti á sama hátt svo við skoðum málin út frá mismunandi upplifunum einstakl- inga. Því fer fjarri að við hugsum öll eins í þessum efnum. Ég dreg upp myndir af einelti og afleiðingum þess og kem með leiðir fyrir þolendur og samstarfsfólk þar sem ég legg ríka áherslu á ábyrgð hvers og eins. Við skoðum jafnframt mikilvægi fyrirbyggjandi aðgerða. Ásamt því að greina frá staðreyndum flétta ég inn í námskeiðið upplestur úr reynslusögum þolenda. Ég byggi þó fyrst og fremst á viðamikilli heimildavinnu og staðreyndum. Reynsla mín er sú að þátttakendur á tveggja stunda námskeiðunum eru mjög áhugasamir og lifandi umræður eiga sér stað þar sem vel koma í ljós mismunandi skoðanir, upplifanir og sýn á samskiptum og einelti.“ Fyrsta íslenska rannsóknin á einelti á vinnustöðum „Árið 1999 gerði ég fyrstu tvær rannsóknirnar um einelti á vinnu- stöðum sem gerðar hafa verið á Íslandi í félagi við Pálínu Benjamíns- dóttur sem var samnemandi minn í Háskóla Íslands. Fyrri rannsókn- inni var ætlað að kanna tíðni eineltis. Við stöllur fórum í hvert einasta frystihús á Suðurnesjum; í Grindavík, Keflavík, Garði og Vogum, sem höfðu tíu starfsmenn eða fleiri. Þau voru nokkuð mörg á þessum tíma. Við lögðum spurningalista fyrir fólkið og niðurstöðurnar reynd- ust svo áhugaverðar að við sóttum um og fengum styrk frá Nýsköp- unarsjóði til þess að gera svokallaða eigindlega rannsókn á efninu, þ.e. taka viðtöl við fólk sem hafði tengst einelti á einhvern hátt, t.d. þolendur. Þá tókum við m.a. viðtöl við ýmsa starfsmannastjóra, full- trúa stéttarfélaga, lögfræðing hjá Vinnueftirlitinu og fjölmarga fleiri. Rannsóknunum tveimur var svo steypt saman í eina skýrslu og hún hlaut tilnefningu til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands árið 2000, sem við vorum afar stoltar af. Á þessum tíma voru ekki einu sinni til upplýsingabæklingar fyrir almenning um einelti á vinnustöðum og að beiðni VR gerði ég bækling sem er enn í dag í notkun, næstum tíu árum seinna. Sem betur fer er staðan í dag allt önnur. Þegar við Pálína vorum upphaflega að byrja á rannsókninni, vissum ekki einu sinni hvaða orð við gætum notað yfir einelti við upplýsingaleit á netinu.“ Einelti á vinnustað getur beinlínis skaðað fyrirtækið „Á námskeiðunum legg ég ríka áherslu á hvers konar afleiðingar einelti á vinnustað getur haft fyrir sjálft fyrirtækið. Um þessar Einelti á vinnustöðvum mun aukast í kreppunni þegar samkeppni um störfin verður harðari. Algengar birtingarmyndir eineltis eru: Ranglegar ásakanir, upplýsingum haldið leyndum, afskiptaleysi, einangrun og niðurlæging. TExTi: hrund hauksdóttir • MynD: geir ólafsson E i n E LT i EinELTi á vinnustöðum

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.