Frjáls verslun - 01.10.2008, Síða 61
62 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 8
K
YN
N
IN
G
NordicaSpa er heilsulind á heims-mælikvarða sem veitir fyrsta flokks þjónustu í rólegu og þægilegu
umhverfi. Þar geta gestir dekrað við sig og
látið þreytu dagsins líða úr sér.
Ávísun á vellíðan
Ragnheiður Birgisdóttir, framkvæmdastjóri
hjá NordicaSpa, hvetur fólk til þess að styðja
íslenska framleiðslu og gleðja fólk með
gjafabréfi sem er ávísun á vellíðan og góða
heilsu:
„Um þessar mundir leggjum við áherslu
á gjafakortin okkar og viljum vekja athygli
á hversu vel til fundin gjöf þau eru. Allir
kunna að meta slíka gjöf, hvort sem um er
að ræða vini, vandamenn, starfsfólk eða við-
skiptavini.
Væntanlega fara færri í verslunarferðir
erlendis fyrir þessi jólin og því ætti des-
emberverslunin hér heima að verða kraft-
mikil og fólk sameinast vonandi í því að
styðja íslenska framleiðslu.
Gjafakortin okkar hitta beint í mark, nú
meira en nokkru sinni fyrr. Það er mjög vel
til fundið að gefa þeim sem þú vilt gleðja
vellíðan, slökun og ánægju. Verðið hefur ekki
hækkað hjá okkur síðan í fyrra og því fær
fólk mikið fyrir peningana með gjafakorti í
þjónustuna sem NordicaSpa hefur upp á að
bjóða; í heilsulindinni, nuddi, snyrtingu eða
í sjálfri heilsuræktinni.“
Dekur og lítil kraftaverk
„Öll viljum við vera í góðu innra jafnvægi,
sérstaklega eftir annasaman desembermánuð,
en þá er einmitt nauðsynlegt að við gefum
sjálfum okkur tíma og ræktum líkama og
sál. NordicaSpa býður upp á vandaða og fjöl-
breytta þjónustu þar sem markmiðið er end-
urnæring og slökun í afslappandi umhverfi.
Hægt er að leita til faglærðra snyrtifræðinga
og nuddara sem geta gert lítil kraftaverk. Ótal
möguleikar og meðferðir eru í boði þar sem
mögulegt er að eyða jafnvel heilum degi í að
láta dekra við sig. Mæðgur, hjón og vinkonur
taka sig oft saman og gera sér glaðan slök-
unardag í friðsælu umhverfi NordicaSpa.“
Ragnheiður Birgisdóttir er framkvæmdastjóri NordicaSpa.
Nordica Spa
GlæsIleG GjafaKort
www.nordicaspa.is
„Það er mjög vel
til fundið að gefa
vellíðan, slökun og
ánægju þeim sem
þú vilt gleðja.“