Frjáls verslun - 01.10.2008, Side 81
82 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 8
Kvikmyndir
Misheppnuð til-
raun til að
drepa adolf
Hitler í júlí 1944
TExTI:
hiLmar KarLsson
Nokkrar tilraunir voru gerðar til að koma Hitler fyrir kattarnef meðan á síðari heimstyrjöldinni stóð en þær mistókust allar. Hann lét lífið fyrir eigin hendi í Berlín í lok styrjaldarinnar.
Þekktasta tilræðið og það sem mest hefur verið fjallað um, í ótal
blaðagreinum og bókum, var hin svokallaða Júlí-aðgerð sem átti sér
stað 20. júlí 1944. Hefði tilræðið heppnast hefði sjálfkrafa farið í gang
Valkyrjuáætlunin sem samin var af ráðamönnum Þriðja ríkisins ef til
uppreisnar kæmi og meira að segja Hitler hafði átt hlut í að skapa.
Kvikmyndin Valkyrie, sem Bryan Singer leikstýrir, dregur nafn sitt af
þessari áætlun en fjallar að langmestu um aðdraganda og framkvæmd
Júlí-aðgerðarinnar.
Þegar komið var fram á mitt ár 1944 voru margir herforingjar
búnir að sjá að Þjóðverjar stefndu í ósigur. Henning Von Tresckow
hershöfðingi hafði reynt misheppnað tilræði við Hitler og vildi reyna
aftur og fékk annan yfirmann í hernum, Claus von Stauffenberg
greifa með sér. Sá skyldi framkvæma tilræðið sem fólst í að sprengja
loftvarnabyrgi sem Hitler fundaði í. Stauffenberg hafði verið hækk-
aður í tign og sat á fundum með Hitler. Hann hafði borið sprengjuna
á sér á fundum áður en kjörið tækifæri kom loks í Rastenburg 20. júlí
1944, en sá fundur var að vísu ekki haldinn í loftvarnabyrginu. Þegar
Stauffenberg hafði komið sprengjunni fyrir undir borði brá hann sér
frá og flaug ásamt aðstoðarmanni með flugvél til Berlínar. Þegar hann
lenti frétti hann að Hitler hefði lifað af sprenginguna en þrír aðrir
hefðu farist.
Sprengjan var öflug og Hitler hefði átt að drepast en skýringarnar
á því af hverju hann hélt lífi eru nokkrar. Líklegasta skýringin er að
sprengjunni hafi verið komið fyrir við voldugan borðfót sem hugs-
anlega hefur hlíft Hitler. Í upphafi hafði Stauffenberg ætlað að vera
með tvær sprengjur og hefði hann fylgt því eftir er líklegt að ætl-
unarverkið hefði tekist. Í staðinn fékk Hitler enn eitt tækifærið til að
losa sig við alla þá sem hann grunaði um að væru á móti sér. Hann lét
í kjölfarið handtaka fimm þúsund manns og allir samsærismennirnir
voru teknir af lífi.
Vandræðagangur
Gerð Valkyrie hefur ekki gengið sem skyldi og margvíslegur vandræða-
gangur við gerð hennar hefur komið upp á yfirborðið. Hefur vand-
ræðagangurinn meðal annars tengst því að Tom Cruise leikur Claus
Von Stauffenberg, sem er aðalpersóna myndarinnar. Náið samstarf
Cruise við Vísindakirkjuna bandarísku varð til þess að einhverjir þýskir
stjórnmálamenn reiddust og tóku svo sterkt til orða að líkja Cruise
við áróðursmeistara Hitlers, Josef Goebbels. Þá hafa afkomendur
Stauffenbergs verið allt annað en ánægðir með að Tom Cruise skuli
leika þennan fræga forföður þeirra sem er hetja í augum Þjóðverja. Allt
þetta gerði að verkum að erfitt var að fá leyfi til að kvikmynda á þeim
stöðum sem atburðirnir gerðust. Áður en tökur hófust í fyrrasumar
voru þó flest leyfi fengin, meðal annars til að mynda í hinni sögulegu
byggingu Bendlerblock þar sem Stauffenberg og félagar lögðu á ráðin
um morðið á Hitler og Stauffenberg var tekinn af lífi. Í fyrstu var því
haldið fram af þýskum yfirvöldum að staðurinn myndi tapa virðingu
ef þar yrði komið upp kvikmyndaveri. Þjóðverjar skiptu um skoðun á
þessu atriði en héldu sig við neitun um að kvikmynda á lögreglustöð-
inni í Berlín.
VAlKyrjA
Eins og sjá má er svipur með Claus Von Stauffenberg og Tom
Cruise, sem er til hægri á myndinni.
Þýskir herforingjar
leggja á ráðin um að
myrða Adolf Hitler.