Frjáls verslun - 01.10.2008, Page 88
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 8 89
s vefn og heilsa er sérverslun í Listhús-inu í Laugardal og Óseyri 2 á Akur-eyri. Í Svefni og heilsu er verslað með
heilsudýnur, húsgögn og flestallt það sem
þarf í gott svefnherbergi. Framkvæmdastjóri
er Elísabet Traustadóttir.
„Svefn og heilsa býður það besta hverju
sinni í heilsudýnum þar sem gæði og góð verð
fara saman. Hjá okkur vinnur fagfólk sem býr
yfir sérhæfðri þekkingu á dýnum yfirleitt og
hefur tæplega 20 ára reynsla hérlendis gefið af
sér tugi þúsunda ánægða viðskiptavina. Við
erum með gott úrval af heilsudýnum við allra
hæfi og verslum við viðurkennd fyrirtæki á
þessu sviði. Má nefna IQ-CARE þrýstijöfn-
unardýnurnar, sem valdið hafa byltingu í
valkostum einstaklinga á síðustu árum, og að
vestan koma Chiropractic heilsudýnurnar.
Starf mitt felst í að sjá meðal annars um
markaðsmál, auglýsingar, heimasíðu, starfs-
mannamál og í raun allt sem til fellur. Und-
anfarið hef ég verið að vinna við lagerútsöluna
að Kletthálsi 13 og svo eru auðvitað jólin fram-
undan með öllu sem þeim fylgir.“
Elísabet er eigandi að Svefni og heilsu ásamt
eiginmanni sínum Sigurði Matthíassyni. „Við
erum mjög ólík á margan hátt en vinnum mjög
vel saman. Við vegum hvort annað upp.“
Elísabet er með menntun í fjölmiðlafræði
og grafískri hönnun: „Ég hef einnig verið
dugleg að sækja alls konar námskeið og síðast
fór ég á námskeið í Fjöltækniskólanum og
tók pungaprófið. Ég hef alltaf haft gaman
af því að sigla og veiða og það er langþráður
draumur að eignast snekkju eða alvöru bát.
Þá er ekki verra að hafa skipstjóraréttindi.“
Elísabet og Sigurður eiga fjögur börn og
einn hund og er í nógu að snúast á heimilinu.
Áhugamálin eru mörg hjá Elísabetu og Sig-
urði: „Það sem stendur upp úr eru ferðalög. Í
sumar fórum við meðal annars í fjórhjólaferð
að Hólaskógi með börnunum okkar, sem var
mjög skemmtileg ferð sem lifir í minningunni.
Við getum stundum sameinað vinnu og frí og
slík ferð var farin til Belgíu um mánaðamótin
október nóvember en okkur var boðið þangað
í brúðkaup. Við notuðum einnig ferðina til
að sinna fyrirtækinu með því að fara á hús-
gagnasýningu í Brussel. Var frábært að komast
aðeins í burtu af klakanum og fá smáhvíld
frá óróanum í þjóðfélaginu. Hvað varðar mig
sjálfa þá er ég mikil fjölskyldumanneskja og
fæ ég mest út úr því að vera í faðmi fjölskyld-
unnar, elda og borða góðan mat.“
Fólk
Elísabet Traustadóttir:
„Ég hef verið dugleg
að sækja alls konar
námskeið og síðast
fór ég á námskeið í
Fjöltækniskólanum og
tók pungaprófið.“
framkvæmdastjóri Svefns og heilsu
ElísAbEt tRAustAdóttiR
Nafn: Elísabet Traustadóttir.
Fæðingarstaður: Reykjavík
15. ágúst 1962.
Foreldrar: María Ágústa
Einarsdóttir og Trausti Ólafsson,
fyrrv. stórkaupmaður.
Maki: Sigurður Matthíasson.
Börn: Matthías Trausti, 20 ára,
Aldís María, 19 ára, Bjartur
Snær, 9 ára og Elísa Sól, 8 ára.
Menntun: BA í fjölmiðlafræði
(APR) og BFA í grafískri hönnun.