Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2006, Side 57

Frjáls verslun - 01.03.2006, Side 57
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 6 57 á landi. Þetta var gert á sama tíma í Þrándheimi, Álasundi, Osló, Kaupmannahöfn, London og Luxemborg. Það er engin spurning að sú leið sem við fórum er leið áhættunnar, en við vildum ná sem mestum árangri á skömmum tíma og fimm dögum seinna voru 97% landsmanna komnir með nafnið á hreint.“ Hvernig var svo fyrir starfsfólk bankans að mæta á „nýjan“ vinnustað: „Það er óhætt að segja að margt hafi komið á óvart þegar það mætti í vinnu eftir nafnbreytinguna,.rauði liturinn var alls staðar, ný bréfsefni og flestir nauðsynlegir smáhlutir nýir, meira að segja var búið að taka allar kaffikrús- irnar og setja nýjar inn með réttu nafni og allir voru komnir með nýtt netfang. Þá er gaman er að segja frá útlendingunum sem komu á fundinn í Háskólabíói. Undrun þeirra var mikil á fundinum og ekki var hún minni þegar þeir komu út og fóru í bæinn og sáu skilti með nýja nafninu í Lækjargötunni og strætó keyra framhjá með auglýsingar um nýtt nafn á vagn- inum. Þeir áttu ekki orð.“ Kostnaðurinn minni en sýnist Markaðs- og auglýsingaherferð af þeirri stærðargráðu sem Glitnis herferðin er kostar mikið og Birna er spurð hvort um ótakmarkað fjármagn hafi verið að ræða: „Nei, nei, við vorum með kostnaðaráætlun sem hafði verið samþykkt af stjórn bankans. Kostnaðurinn er samt ekki eins mikill og hann lítur út fyrir að vera. Áður en breytingin kom til hafði verið passað upp á að prenta eins lítið og hægt var með gamla nafninu þannig að það þurfti hvort eð er að fara að prenta og ýmislegt annað hafði verið tekið með í reikninginn, sem dró úr kostn- aði. Marsmánuður er mikill auglýsingamánuður hjá okkur og fyrirfram ákveðin upphæð kom inn í kostnaðinn við breyting- una, en umframkostnaður liggur einhvers staðar í kringum 150 milljónir.“ Sverrir tekur fram að dýrasti hlutinn í framleiðslunni hafi verið sjónvarpsauglýsingin. Saga Film var kallað til og topp- fólk þar á bæ fengið til starfsins. Eins og ávallt í stórum auglýs- ingaherferðum voru gefnir út bæklingar og auglýsingar settar á skýli, strætó og í blöð. Það sem vakti einna mest athygli í auglýsingaherferðinni var geisladiskur. Þegar pósturinn var sóttur einn daginn kom í ljós að í honum var meðal annars geisladiskur með níu lögum fluttum af þekktum listamönnum í íslenskri dægurtónlist. Ekki amalegt það og víst er að að á mörgum heimilum hefur síðan mátt heyra Bubba syngja Ástin mín, Sálina hans Jóns míns syngja Undir þínum áhrifum og Mugison flytja, á sinn sérstaka hátt, Murr, Murr, svo þrjú lög séu nefnd. Sú hugmynd að gefa út geislaplötu í auglýsinga- skyni er ekki ný af nálinni þó ekki sé það algengt hér á landi. Erlendis er þetta algengt og þarf ekki annað en að fara í næstu bókabúð og kíkja í blaðahilluna til að sjá dæmi um slíkt. Óneit- anlega er það samt skemmtilegt að inn á milli gluggaumslag- anna í póstinum skuli hafa verið rauður gleðigjafi. Sverrir segir aðspurður að hann muni ekki eftir stærri herferð hjá Hvíta húsinu. Undirbúningurinn hafi verið mjög langur, en þegar kom að því að gera hlutina þá var gefið í og unnið af miklum krafti „Allt gekk upp. Einu leiðindin eru þau að á sama tíma og við erum að setja herferðina okkar af stað fréttum við af herferð í Noregi með myndmáli; grafi á myndum líkt og okkar herferð. Þetta er ótrúleg tilviljun og var því slegið upp að við værum að stæla norsku herferðina, sem er algjör vitleysa. Það mundi aldrei hvarfla að okkur að fara að líkja eftir einhverri annarri auglýsingaherferð. Við vorum búnir að vinna mánuðum saman og í mikilli leynd að okkar herferð áður en sú norska fór af stað, um viku áður en við fórum af stað með undanfarana hér heima. Það er leiðinlegt að þetta skyldi gerast og okkur er alls ekki sama. Tilviljunin er ótrúleg og þessi tilviljun var okkur í óhag. Ég held að allir sem gera sér grein fyrir umfangi her- ferðar okkar sjái að óhugsandi er að við höfum stælt þá norsku á síðustu dögunum áður en við förum af stað.“ Birna viðurkennir að dálítið hik hafi komið á þau þegar fréttir bárust af norsku herferðinni: „Það var of seint að hætta við eða gera einhverjar róttækar breytingar þannig að við héldum okkar striki og keyrðum áfram. Við breyttum að vísu aðeins herferðinni í Noregi. Það var ekki hægt að keyra hana á sama hátt og annars staðar. Við þá sem vilja halda því fram að um eftiröpun hafi verið að ræða getum við sagt, að þegar við fórum af stað með fimm herferðir í upphafi til að prufa okkur áfram þá var ein herferðin sú, sem við ákváðum að nota í lokin. Hún var könnuð í Noregi sem og annars staðar síðasta haust. Hvort þeir sem stjórnuðu norsku her- ferðinni hafi eitthvað vitað um hugmyndir okkar vitum við ekki. Hvað um það, ef um tilviljun er að ræða kom hún aðeins við okkur, en hefur ekkert með framhaldið að segja. Við erum ákaflega ánægð með hvernig tekist hefur og stefnum ótrauð áfram á sömu braut í kynningarmálum okkar, nóg er framundan á þeim vettvangi, hér á landi sem og í útlöndum.“ A U G L Ý S I N G A M Á L Hugmyndin að herferðinni eins og hún var sýnd í rýnihópum á Íslandi, í Noregi, London og Luxemborg í september 2005. Þessar tillögur voru sendar út í september
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.