Frjáls verslun - 01.03.2006, Blaðsíða 58
58 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 6
É
g vil ekki gera of mikið úr því að herferð annars
bankans sé stæling á herferð hins,“ segir Arne
Harket, kynningarstjóri Fokus bank í Noregi, um
svipinn sem er með auglýsingum Glitnis á Íslandi
og bankans hans. Hann segir að auglýsingum bankanna svipi
saman við fyrstu sýn en ekki meir.
Svipur eða ekki svipur, það er spurningin. „Tsja,“ er
svar Harkets en hann leggur þó áherslu á að Fokus bank
var fjórum dögum á undan Glitni að kynna almenningi sína
herferð. Hvað varðar Fokus bank þá er Harket höfundur
herferðar bankans í þeim skilningi að hann lagði hugmyndir
um nýja kynningarherferð fyrir stjórn bankans í september á
síðasta ári. Þá þegar var byrjað að vinna að málinu - en aðeins
innan bankans í fyrstu.
Ferill máls hjá Fókusbanka „Það var
ekki ætlunin að þetta yrði auglýsinga-
herferð heldur var hugmyndin að starfs-
fólk bankans settist niður og hugsaði
út: Hvernig banki viljum við vera? Í
fyrstu var þetta bara verkefni innan
bankans,“ segir Harket.
„Við erum ekki stórir á norska mark-
aðnum, ekki frekar en Glitnir, og þess
vegna held ég að það sé mikilvægt að
allir sem vinna í bankanum ræði saman
og hugleiði: Hvernig banki er þetta
sem við vinnum í? Hverjum viljum við
þjóna?“ segir Harket.
Hann leggur áherslu á að þetta starf var í fyrstu aðeins
innan bankans og að þjónusturáðgjafar bankans unnu sjálfir
grunnvinnuna. Hugmyndin um að nota slagorðið „Dine pen-
ger - vore hoder“ eða „Peningarnir þínir - okkar hugmyndir“
kom frá ráðgjöfunum.
„Í október á síðasta ári var þetta starf farið að taka á sig
mynd og við ákváðum að hafa samband við Auglýsinga- og
kynningaþjónustuna Bates hér í Ósló vegna lokaútfærsl-
unnar, segir Harket. Bates er alþjóðleg stofa sem lengi hefur
haft útibú í Noregi.
Og í lok nóvember kom efnið frá auglýsingastofunni og var
samþykkt í Fókusbanka. Ákveðið var að hefja nýja kynningar-
og markaðsherferð í 9. viku þessa árs - það er eftir mánaða-
mótin febrúar/mars.
Ung, hress og klár Þetta er ferill málsins eins og hann var í
Fókusbanka. Harket segir að hugmyndirnar hafi komið frá
bankanum, áherslan á að bankinn væri ungur og hress og
að bankinn hefði á að skipa hæfu starfsfólki sem viðskipta-
vinirnir gætu treyst. Starfsfólkið leikur sjálft sig í auglýsing-
unum.
„Það er ekkert launungamál að við viljum ná til ungs fólks
með peninga. Við viljum ná til fólks í efri lögum samfélagsins
og ímynd bankans á að snúast um að við séu ung, hress og
klár,“ segir Harket.
Hann segir að lokagerð herferðarinnar hafi verið mótuð
af auglýsingastofunni. Einstakar auglýsingar og einstakar
myndir er gerðar á auglýsingastofunni en heildamyndin var
sköpuð af starfsfólki bankans.
A U G L Ý S I N G A M Á L
TEXTI: GÍSLI KRISTJÁNSSON, ÓSLÓ • MYNDIR: FOKUS BANK Í NOREGI
SVIPUR EÐA EKKI SVIPUR?
Frjáls verslun ræðir hér við Arne Harket, höfund kynningarherferðar Fokus bank
í Noregi, um svipinn sem er með auglýsingum Glitnis og bankans hans.
Arne Harket er höfundur kynningarherferðar Fokus bank í Noregi:
Bil
Hytte
?
Bolig
Fra
3.35%
3.53%*
Med Fokus Boligkreditt kan du ta ut opp til 70% av
boligens verdi. Du kan investere pengene akkurat slik
du ønsker. Hvordan, legger vi oss ikke bort i. Det er jo
tross alt dine penger.
Du slipper å etablere nytt lån, du bare overfører
pengene til brukskontoen. Boligkreditten sørger for at
du alltid har penger tilgjengelig, og til hyggelig rente.
Ta kontakt med en av våre rådgivere hvis du vil bruke
formuen du har i bolig til andre nyttige formål.
Ring 815 44 230 eller gå inn på fokus.no
og avtal time med en av bankens rådgivere.
Har du mesteparten av formuen din
bundet opp i huset?
*Effektiv rente, Boligkreditt på´to millioner kroner, etableringskostnader kr 1600,-, månedlige
omkostninger kr 75,- og 100% utnyttelse. nom. rente er 3.35%
Dine penger. Våre hoder.
B
_
T
_
S
U
N
IT
E
D
F
O
T
O
: M
O
R
T
E
N
K
R
O
G
V
O
L
D
B
_
T
_
S
U
N
IT
E
D
F
O
T
O
: M
O
R
T
E
N
K
R
O
G
V
O
L
D
JOHN KVANLI, RÅDGIVER FOKUS BANK
„Það eru eins og hverjar aðrar vangaveltur
út í bláinn að tala um þjófnað,“ segir Harket.
„Ég minni líka á að herferðir bankanna eru
ekkert líkar þótt menn sjái einhvern svip við
fyrstu sýn. Þetta er ekkert líkt.“
Arne Harket er höfundur
kynningarherferðar
Fokus bank í Noregi.