Ægir

Volume

Ægir - 01.03.2007, Page 8

Ægir - 01.03.2007, Page 8
8 Æ G I R Í H U N D R A Ð Á R Ofan í kjallara á æskuheimili mínu var myndarlegt skrif- stofuherbergi þar sem tvennt var þungamiðjan. Útvarpið, sem alltaf var stillt á báta- bylgjuna og þaðan sem sterkur rómur vestfirskra skipstjóra ómaði um allt húsið þegar svo bar undir. Svo voru veggir her- bergisins þaktir bókum. Þar skipaði tímaritið Ægir mikinn virðingarsess. Nýir árgangar juku stöðugt rými sitt í hill- unum og einn góðan veðurdag fékk faðir minn ritið allt inn- bundið í afmælisgjöf. Þetta var glæsilegt safn, ættað úr búi Emils Jónssonar forvera míns í stóli sjávarútvegsráðherra (þá raunar atvinnumálaráðherra). Þar með var Ægir orðinn dýrgripur í annarri merkingu líka. Eftirsóttur til lestrar sem fyrr, tímaritasafnið allt í heil- legri röð, fallega innbundið og naut virðingar á heimilinu. Ægir hefur eiginlega verið mér samferða á vissan hátt. Ég man að því fylgdi sér- stök spenna að lesa ítarlegar frásagnir af nýjum bátum, sem birtust í tímaritinu. Fjöl- miðlar gerðu slíkum málum önnur skil þá og svo var þjóðlífið allt fábrotnara. Fyrir strák, áhugasaman um sjó- sókn og sjávarútveg, var kjarngott að lesa lýsingu af nýjum bátum; hvort sem þeir nú voru smíðaðir úr furu og eik, eða eðalstáli. Kannski þætti þetta ekki spennandi lesning í dag, en ég var ekki einn um það að lesa þetta af áfergju. Og í dag eru þessar frásagnir ómetanlegar heim- ildir um skipasögu okkar og bregður upp mynd af fram- förum í útveginum. Ægir er í rauninni einstakt tímarit. 100 ára samfylgd hans og sjávarútvegsins skapar tímaritinu sérstöðu, af aug- ljósum ástæðum. Með því að lesa í gegn um það sér maður sögu sjávarútvegsins í hnot- skurn. Þar skrifuðu menn fyrr meir greinar til þess að vekja athygli á nýjungum á sviði sjávarútvegsins. Fræðimenn greindu okkur frá því sem helst var að gerast í hafrann- sóknum og annars staðar að af vísindasviðinu. Við lásum um tíðindi úr verstöðvum, viðtöl við forystumenn og í þessu blaði talaði greinin ein- um rómi í gegn um heild- arsamtök sín, Fiskifélag Ís- lands. Það má því segja að Ægir hafi í raun verið mikil þunga- miðja umræðunnar um sjáv- arútveg, sem þá var ólíkur því sem við þekkjum í dag. Bæði umræðan og sjávarútveg- urinn. Hin virku tengsl Fiski- félagsins við vísindaumhverf- ið sem óx smám saman, lit- uðu auðvitað frásagnir blaðs- ins og þannig skipti blaðið örugglega máli við að draga athyglina að nýjungum og framförum. Ægir er í rauninni mikill aldarspegill. Og þess vegna er það sérstaklega ánægjulegt að blaðið hefur staðist tönn tímans svona vel. Það er langt frá því sjálfgefið að Ægir hafi lifað af alla þá brimskafla sem nútíminn reiðir yfir flest í um- róti samtímans. Hin nánu tengsl við Fiskifélagið gaf blaðinu lífsanda sem dugði vel áratugum saman. Því kynntist ég einmitt beinlínis. Fyrst sem félagi á Fiskiþingum um nokkurra ára skeið og síðar sem formaður Fiskifélagsins. Smám saman varð okkur þó ljóst að Fiski- félagið, sem var gott til flestra hluta, var kannski ekki endi- lega best lagað til útgáfustarf- semi, þegar þar var komið sögu. Það ráð sem Fiskifélag- ið brá því á, að fela útgáfuna í hendur annarra, var því í takt við þær breytingar sem hafa orðið í þjóðfélaginu. Blaðinu hefur hins vegar auð- nast að halda sívirkum tengslum sínum við sjávarút- veginn og vekja þannig áhuga okkar sem viljum fylgjast með umræðunni um sjávarútvegs- mál; jafn síkvik og breytileg sem hún er. Á þessum tímamótum vil ég því senda gömlum vini, tímaritinu Ægi, afmæliskveðj- ur og vænti þess að njóta samfylgdar áfram, svo að blaðið geti um ókomna tíð orðið sá aldarspegill sjávarút- vegsins sem það hefur verið frá öndverðu. Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra. Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra. Aldarspegill sjávarútvegsins Fyrir strák, áhugasaman um sjósókn og sjávarútveg, var kjarngott að lesa lýsingu af nýjum bátum; hvort sem þeir nú voru smíðaðir úr furu og eik, eða eðalstáli. Kannski þætti þetta ekki spennandi lesning í dag, en ég var ekki einn um það að lesa þetta af áfergju.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.