Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.2007, Blaðsíða 45

Ægir - 01.03.2007, Blaðsíða 45
45 Átt þú rétt á styrk? Sjómennt er fræðslusjóður sjómanna og útgerðarfyrirtækja. Félagsmaður, sem unnið hefur í a.m.k. 12 mánuði skv. kjarasamningi SA/LÍÚ við Sjómanna- samband Íslands, hjá útgerðum innan LÍÚ, og greitt til aðildarfélags Sjómennt- ar á þeim tíma á rétt á stuðningi til starfsnáms. Samtök atvinnulífsins (SA), Landssamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) og Sjómanna- samband Íslands (SSÍ) standa að Sjómennt. Ertu búinn að vera á sjónum í eitt ár eða meira? Langar þig að fara á námskeið eða í skóla? SJÓMANNASAMBAND ÍSLANDS LANDSSAMBAND ÍSLENSKRA ÚTVEGSMANNA Sjómennt • Fjöltækniskóla Ís lands • Háteigsvegi • 105 Reykjavík • Sími 522 3300 • Fax 522 3301 Nánari upplýsingar: www.sjomennt.is • sjomennt@sjomennt.is E N N E M M / S IA / N M 13 5 7 0 flytja landsmönnum fréttir af aflabrögðum bæði svæðis- og veiðarfærabundnum. Hver man ekki eftir upplýsingum af afla síldarskipanna þegar síldveiðarnar hófust aftur hér við land upp úr 1950 sem Ægir flutti landsmönnum skýrt og skilmerkilega? Svo vinsælar voru þessar fréttir á meðal landsmanna að þær voru lesnar í útvarpið einu sinni í viku og ég dreg í efa að þessara frétta hafi á þeim tíma verið beðið með minni eftirvæntingu en frétta af hin- um ýmsu íþróttakappleikjum dagsins í dag, svo víðtæk var hlustunin og spenningurinn eftir þessum fréttum. Fiskifélagið stóð til margra ára fyrir fræðslu í stýrimanna- og vélstjórnarfræðum og á ár- bilinu 1915-1966 luku 3.235 manns hinu minna mótorvél- stjóraprófi Fiskifélagsins á 149 námskeiðum, sem haldin voru vítt og breitt um landið. Hinu meira námskeiði Fiski- félagsins luku 326 manns á 31 námskeiði sem haldið var eingöngu í Reykjavík. Í heild- ina útskrifaði Fiskifélagið 3.651 manns með mótorvél- stjórapróf á 180 námskeiðum í 51 ár, eða 70 manns á ári. Ægir greindi að sjálfsögðu frá bæði námskeiðahaldinu og námsefni einstakra nám- skeiða á þeim árum sem námskeiðin voru haldin. Þannig hefur Ægir verið frá upphafi fróðleiksbrunnur bæði þeirra sem komið hafa nálægt sjávarútvegi í einhverri mynd svo og þeirra fjölmörgu sem hafa í gegnum tíðina haft áhuga á greininni og sett sig inn í málefni hennar og að- stæður. Þrátt fyrir þá stað- reynd að blaðið sé ekki leng- ur gefið út af Fiskifélaginu er það enn trútt uppruna sínum og markmiðum þar sem það flytur okkur með hverju tölu- blaði breiðan fróðleik af okk- ar höfuðatvinnugrein, sjáv- arútveginum, í sínum fjöl- breyttu myndum. Umfjöllunin um vélbúnað skipa hefur að sönnu breyst frá því sem fyrst var þegar fjallað var um tækniundur þess tíma, 2-10 hö glóðarhausbátavélar, sem þeirra tíma mótorvélstjórar voru uppfræddir til að þjóna. Í dag eru aðalvélar stærstu fiskiskipanna allt að 8000 hö, eða allt að 800 sinnum stærri en var við upphaf vélvæðing- arinnar. Til viðbótar má segja að allt skipið sé eitt hátækni- vætt vélarúm þar sem nánast öll starfsemi sem fram fer um borð er vélknúin og henni stýrt með fjölbreyttum vél- og rafbúnaði. Námsefnið sem nægði til þess að útskrifa mótorvélstjórana í upphafi aldarinnar var kennt á um 2 mánuðum. Nú er skólaárið um 10 mánuðir og það tekur meðalnemanda um 5,5 ár að ljúka vélstjórnarnáminu, eða um 55 mánuði að viðbættum 2 ára smiðjutíma, þ.e. 79 mánuðir eða um 40 sinnum lengri tíma en fyrstu mótor- námskeiðin tóku. Frá því að Ægir hóf göngu sína hefur íslenskur sjávarút- vegur og samfélag gengið í gegnum ótrúlegar breytingar. Þrátt fyrir þessar öru breyting- ar hefur blaðinu tekist að koma á framfæri stöðugum fréttum og upplýsingum af þessari þýðingarmestu grein okkar atvinnulífs. Bestu þakk- ir fyrir gott starf á liðnum ár- um og til hamingju með tíma- mótin. Helgi Laxdal, formaður VM Æ G I R Í H U N D R A Ð Á R Þrátt fyrir þá staðreynd að blaðið sé ekki lengur gefið út af Fiskifélaginu er það enn trútt uppruna sínum og markmiðum þar sem það flytur okkur með hverju tölublaði breiðan fróðleik af okkar höfuðatvinnugrein, sjávarút- veginum, í sínum fjölbreyttu myndum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.