Ægir - 01.03.2007, Blaðsíða 114
114
Nýtt skip Bergs-Hugins í Vest-
mannaeyjum, Vestmannaey VE
444, kom til heimahafnar í
Eyjum um miðjan mars. Skipið
var smíðað í Póllandi, skrokk-
urinn í Crist Shipyard í Gdansk
og lokafrágangur var unninn í
Nordship í Gdynia. Bergur-
Huginn samdi við BP-Skip ehf.
um smíði skipsins. Til stóð að
skipið kæmi til landsins í jan-
úar sl., en afhending þess
hefur af ýmsum orsökum taf-
ist um sem næst tvo mánuði.
Gert út á ísfiskveiðar
Vestmannaey kemur í stað
Vestmannaeyjar VE 54, sem
er frystitogari og er hann á
söluskrá. Skipið verður gert
út á ísfiskveiðar og er gert ráð
fyrir, samkvæmt upplýsingum
Guðmundar Alfreðssonar, út-
gerðar- og tæknistjóra Bergs-
Hugins, að aflinn verði að
stærstum hluta sendur út í
gámum og seldur á erlendum
mörkuðum. Markaðsaðstæður
á hverjum tíma ráði því þó
hvort fiskurinn verði sendur
utan eða seldur á innlendum
mörkuðum.
Lest skipsins er 235 rúm-
metrar og er unnt að koma
þar fyrir 166 660 lítra körum,
sem þýðir 75 tonn af fiski.
Ýmsar upplýsingar
Skipið er hannað af Nautic
ehf. Reykjavík. Mesta lengd
þess er 28,95 metrar, breiddin
er 10,4 metrar og djúprista 4,5
metrar. Aðalvélin er af gerð-
inni Yanmar 6 cyl 514 kw frá
Marási í Kópavogi. Hjálp-
arvélin er Mitsubishi 330 kw
frá MD-vélum. Skipið er búið
Hjelset skiptiskrúfu, 2,25 m
þvermál í skrúfuhring. Spil-
kerfið er Rolls Royce lág-
þrýstikerfi frá Héðni.
Vélsmiðjan Þór smíðaði að-
gerðarkerfi í skipið og orku-
stýringarkerfi kom frá Mar-
orku. Bróðurpartur tækjabún-
aðar í brú er af gerðinni
Furuno frá Brimrúnu.
Almennt var tekið mið af
lágmarks orkueyðslu skipsins
og má í því sambandi nefna
að í stað venjulegra togvíra er
notast við togtaugar úr Dynex
frá Hampiðjunni.
Áætlaður ganghraði skips-
ins er 11,5 sjómílur. Olíutank-
ar skipsins rúma um 100
tonn. Fiskvinnslurýmið er
N Ý T T S K I P
Sjóferðarbæn
- blessun frá Landakirkju við komu Vestmannaeyjar
til heimahafnar 15. mars 2007
Í nafni Guðs, föður, sonar og heilags anda. Al-
máttugi Guð, ég þakka þér að þú hefur gefið mér
líf og heilsu svo að ég geti unnið mín störf í
sveita míns andlits.
Drottinn minn og Guð minn. Þegar ég nú ræ til
fiskveiða og finn vanmátt minn og veikleika
skipsins gegn huldum kröftum lofts og laugar,
þá lyfti ég upp til þín augum trúar og vonar og
bið þig í Jesú nafni að leiða oss á djúpið, blessa
oss að vorum veiðum og vernda oss, að vér aftur
farsællega heim til vor náum með þá björg, sem
þér þóknast að gefa oss.
Blessa þú ástvini vora og leyf oss að fagna aftur
samfundum, svo vér, fyrir heilags anda náð,
samhuga flytjum þér lof og þakkargjörð.
Ó, Drottinn, gef oss öllum góðar stundir, skipi og
mönnum í Jesú nafni. Amen.
Bergur-Huginn fær nýja
Vestmannaey VE 444
Vestmannaey var smíðuð í Póllandi, skrokkurinn í Crist Shipyard í Gdansk og lokafrágangur var unninn í Nordship í Gdynia.
Myndir: Óskar P. Friðriksson/Vestmannaeyjum.
Magnús Kristinsson, útgerðarmaður, ásamt yfirmönnum skipsins.