Ægir - 01.03.2007, Blaðsíða 56
56
Ekki þarf að hafa um það
mörg orð að á undanförnum
árum hefur orðið sprenging í
útflutningi á ferskum fiski
með flugi, bæði til Evrópu og
Ameríku. Þessi mikla aukning
hefur endurspeglast í miklum
og hröðum vexti vöruflutninga-
flugfélagsins Icelandair
Cargo. Mikael Tal Grétarsson,
sölustjóri útflutnings, segir að
þessir flutningar verði þróaðir
enn frekar og hann á von á því
að félagið muni fjölga vélum
og fljúga til nýrra áfanga-
staða. Meira en níutíu af
hundraði þess sem Icelandair
Cargo flytur frá Íslandi er fisk-
ur.
Ætla má að heildarmagn
svokallaðs flugfisks frá Íslandi
sé á bilinu 23 til 25 þúsund
tonn brúttó (með umbúðum)
á ári.
Um 30% af fiskinum sem
Icelandair Cargo flýgur með
frá Ísland fara vestur um haf
til Bandaríkjanna, álíka magn
fer til Bretlands og um 40 af
hundraði á meginland Evr-
ópu.
Mikael segir að verulegur
stígandi hafi verið í flugfisk-
inum á undanförnum árum.
Einkum hafi orðið sprenging
árið 2004, en síðan hafi aftur
hægt á árið 2005. Í fyrra tók
útflutningurinn síðan aftur
kipp og varð þegar upp var
staðið meiri en metárið 2004.
„Það varð töluverð aukning
milli áranna 2005 og 2006 og
það sem af er þessu ári höf-
um við flutt út meira magn af
fiski en í fyrra,“ segir Mikael.
Til marks um aukninguna
í flugi með ferskan fisk má
nefna að fyrir rösklega tveim-
ur árum var Icelandair Cargo
með eina vél í rekstri, en í
dag eru þær fimm. Þar af eru
tvær til þrjár vélar að þjóna
flutningum til og frá Íslandi,
en einnig er félagið með vél-
ar í verkefnum erlendis. Í því
sambandi má nefna flutning á
fiski frá Halifax í Kanada á
Evrópumarkað.
Fjölmörg flug til áfangastaða í
Bandaríkjunum og Evrópu
Til Bandaríkjanna er Ice-
landair Cargo með sjö fragt-
flug í viku, þar af sex flug
með fisk til New York. Fisk-
flutningar til áfangastaða í
Evrópu eru sem hér segir:
Níu flug á viku til Liege í
Belgíu, fjögur flug í viku til
Brussel í Belgíu, sömuleiðis
fjögur flug á Humberside
svæðið í Englandi og einu
sinni í viku er flogið á East
Midland í Englandi
Auk beinna ferða í fragt-
flugi flytur Icelandair fisk í
farþegavélum á áætlunarstaði
sína.
Áreiðanleiki er númer eitt, tvö
og þrjú
Lykilatriði í flutningi á flug-
fiskinum er áreiðanleiki, að
sögn Mikaels. „Hér er verið
að flytja út fisk í áskrift, ef
svo má segja, það er að segja
að fiskurinn er ekki fluttur út
og safnað saman í birgðir í
vöruhúsum. Fiskurinn fer
beint í verslanir og ef flutn-
ingarnir af einhverjum sökum
klikka er fiskurinn einfaldlega
ekki til í verslunum. Það er
því afar mikilvægt að standa
vel að flutningamálunum og
geta þannig tryggt að varan
berist á tilsettum tíma til
kaupenda.“
Erum að skoða nýja
áfangastaði
„Við erum alltaf að skoða
nýja möguleika í þessum
flutningum og það eru allar
líkur á því að við bætum við
okkur vélum áður en langt
um líður. Ef horft er til baka
er það nú svo að á þeim
svæðum sem við höfum verið
að fljúga til hefur myndast
markaður fyrir ferskan fisk frá
Íslandi. Við höfum því verið
að skoða ný markaðssvæði,
en engar ákvarðanir verið
teknar. Ég á ekki von á að
sama magnaukningin haldi
áfram í útflutningi á ferskum
fiski frá Íslandi. Trúlega verð-
ur þó einhver aukning, en ég
á þó ekki von á því að hún
verði í líkingu við það sem
verið hefur undanfarin ár. Við
finnum að í auknum mæli
kallar markaðurinn eftir línu-
fiski, bæði í Bandaríkjunum
og Evrópu. Við fáum fjölda
fyrirspurna um hvernig fisk-
urinn er veiddur og mér virð-
ist að línufiskurinn njóti vax-
andi vinsælda. Umhverfismál-
in skipta alltaf meira máli,
ekki síst í Bretlandi, og við
megum hreinlega ekki sofa á
verðinum í þeim efnum,“ seg-
ir Mikael.
F I S K Ú T F L U T N I N G U R
Íslenski fiskurinn flýgur út!
Mikael Tal Grétarsson, sölustjóri útflutnings hjá Icelandair Cargo. Mynd: Sverrir Jónasson.