Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.2007, Síða 18

Ægir - 01.03.2007, Síða 18
18 Þegar ég var ungur drengur sá ég föður minn örsjaldan. Stundum liðu margir mánuðir milli þess að við hittumst. Í minningunni var pabbi minn framandi maður sem gustaði af og mér fannst ég ekkert þekkja. Vinnan hafði forgang Eins og flestir sjá á þessari stuttu lýsingu þá var faðir minn sjómaður. Hann var skipstjóri sem tók starf sitt al- varlega og stundaði það af kappi og elju, með hag ört stækkandi fjölskyldu að leið- arljósi, eins og þeirra tíma var siður. Eldri bræður mínir þrír áttu því láni að fagna að sigla talsvert með honum, en ég náði því miður aðeins nokkr- um vikum undir lok skip- stjórnarferils hans, þá níu ára gamall. Ekki var um það að ræða á þessum tíma að menn tækju sér frí frá störfum nema í einhverjum algjörum und- antekningartilvikum svo fremi að til stæði að skipið yrði á sjó á annað borð. Lengst af á mínum sjómannsferli, sem spannaði 33 ár, var viðhorfið af svipuðum toga. Menn festu ungir ráð sitt og stofnuðu fjöl- skyldu, keyptu íbúð og réru og réru út í eitt. Margir af minni kynslóð lentu inni í mynstri sem fólst í því að far- ið var með fjölskylduna í tveggja til þriggja vikna sól- arlandaferð einu sinni á ári, en að öðru leyti fóru menn helst ekki í frí ótilneyddir. Þetta lífsmynstur þótti alls ekki svo slæmt og í raun held ég að margir á mínu reki eigi góðar minningar frá þessum árum þótt eftir á að hyggja horfist menn í augu við þá staðreynd að þeir hafi misst að miklu leyti af þeirri upplif- un sem felst í að taka þátt í hefðbundnu fjölskyldulífi og uppvexti barna sinna sem fyrr en varði voru vaxin manni upp fyrir höfuð. Breytt viðhorf En tímarnir breytast og menn- irnir með. Hin öra þróun at- vinnu- og efnahagslífsins hef- ur á skömmum tíma leitt til þess að viðhorf og kröfur al- mennings til lífsgæða hafa tekið afgerandi breytingum. Af þessu leiðir að störf sem fela í sér miklar fjarvistir frá heimili og fjölskyldu eiga undir högg að sækja í vax- andi mæli. Ef sporna skal við þessari þróun er að mínu mati ýmislegt sem þyrfti að gerast til að árangur næðist. Það fyrsta er að kjörum sjó- manna verði komið í þann farveg að tveir sjómenn geti skipt á milli sín einni stöðu og að afkoma hvors um sig standist samt sem áður fylli- lega samanburð við gott heilsársstarf í landi og helst gott betur. Í stað kauptrygg- ingar verður að koma fasta- kaup, sem er að lágmarki helmingi hærra en núverandi kauptrygging og fylgi í grunn- inn hlutaskiptakerfinu eftir stöðu manna, þannig að lág- markslaun skipstjóra yrðu tvöföld til þreföld hásetalaun. Að „halda mönnum á tánum“ Auk þessara grundvallarkjara- bóta er lífsnauðsynlegt að viðhorf og viðmót sumra vinnuveitenda í sjávarúrvegi taki miklum stakkaskiptum frá því sem tíðkast hefur, ef greinin á að standast sam- keppni við aðrar atvinnu- greinar, en til þess þarf eins og útgerðarmenn þekkja manna best að hafa dugandi sjómenn í vinnu. Sá þáttur til- veru launafólks sem snýr að því að búa við atvinnuöryggi, er t.d. stórlega vanmetinn hjá allt of mörgum vinnuveitend- um. Því miður virðast sumir atvinnurekendur hreinlega standa í þeirri trú, að það sé þeirra rekstri til framdráttar að „halda mönnum á tánum“ eins og þeir kalla það, með því að starfsmenn viti helst sem allra minnst um stöðu mála á hverjum tíma og þar með um eigin framtíð. Út- gangspunkturinn til lengri tíma litið í rekstri sjávarút- vegsfyrirtækja, rétt eins og annarra fyrirtækja, hlýtur að felast í þeim gömlu sannind- um að því jákvæðari hug sem starfsmenn bera til vinnuveit- andans þeim mun betra starfi skili menn til baka. Vinnuveit- andi sem umgengst launa- menn með hroka og óvirð- ingu þarf ekki að reikna með merkilegu vinnuframlagi frá launþega sem við slíkar að- stæður býr. Slík staða er ekki neinu fyr- irtæki til framdráttar, hvorki í bráð né lengd. Gagnkvæm virðing og samvinna, í stað yfirgangs, er það sem væn- legast er til velfarnaðar fyr- irtækja og einstaklinga. Í framhaldi af þessum hugrenn- ingum má síðan varpa þeirri spurningu fram hvort það stjórnkerfi fiskveiða sem við búum við sé til framtíðar það vænlegasta til vinsælda, vel- sældar og hagkvæmni af þeim kostum sem hugsanlega gætu komið til greina. Í ljósi þeirra stjórnarhátta og þess áróðurs sem við lýði hafa ver- ið um langa hríð, þar sem megin áhersla hefur verið lögð á einkavæðingu og sam- keppnisumhverfi á öllum sviðum, þá má furðu sæta að þessi gamli undirstöðu- atvinnuvegur okkar stefni á flestan hátt í þveröfuga átt. Gallað fyrirkomulag Hlutdeild þeirra sem selja á frjálsum fiskmarkaði fer minnkandi og meginþorri út- gerða leitast við að borga eins Æ G I R Í H U N D R A Ð Á R Tímarnir breytast og mennirnir með Árni Bjarnason, formaður Félags skipstjórnarmanna.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.