Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.2007, Síða 27

Ægir - 01.03.2007, Síða 27
27 Fiskifélagið og voru ritstjór- arnir þá tveir, Bjarni Kr. Grímsson, fiskimálastjóri, og Þórarinn Friðjónsson, eigandi Skerplu. Í ársbyrjun 1997 tók At- hygli ehf. að sér útgáfu Ægis og við það fluttist ritstjórn Ægis til Akureyrar og hefur verið þar síðan. Jóhann Ól- afur Halldórsson ritstýrði blað inu ásamt Bjarna Kr. Gríms syni og síðar Pétri Bjarna syni, núverandi fram- kvæmdastjóra Fiskifélagsins, en eins og kunnugt er hefur skrifstofa Fiskifélagsins einnig flust til Akureyrar. Athygli keypti síðan útgáfu- réttinn af Ægi og Sjómanna- almanaki Fiskifélagsins og hóf útgáfu blaðsins frá og með ársbyrjun 2001. Skrifstofa At- hygli á Akureyri hefur síðan gefið blaðið út, síðustu fjögur árin hefur Óskar Þór Hall- dórsson ritstýrt blaðinu. Skyldur við sjávarútveginn og lesendur Lengstaf var Ægir gefinn út í brotinu 24,5 x 18,5 cm, en frá árinu 2000 var tekin sú ákvörðun að breyta broti blaðsins í hið hefðbundna A4 brot. Ástæða þessarar breyt- ingar var fyrst og fremst sú að mun hentugra er að vinna blaðið í þessu broti og allar auglýsingar nú til dags eru miðaðar við það brot. Einnig hafði þessi breyting í för með sér aukið efnisrými í blaðinu. Til fjölda ára fylgdu svo- kallaðar Útvegstölur Ægi, en útgáfa þeirra var aflögð í árs- lok 1999. Þessar upplýsingar var á þeim tímapunkti orðið auðvelt að nálgast á Netinu og forsendurnar fyrir útgáf- unni breyttar. Mikið vatn hefur til sjávar runnið í útgáfumálum og fjöl- miðlun frá því að fyrsta tölu- blað Ægis leit dagsins ljós ár- ið 1905. Tvö önnur blöð koma reglulega út sem sinna þessum útvegi, þ.e. Fiskifrétt- ir, sem koma vikulega út, og Sjómannablaðið Víkingur, sem er gefið út nokkrum sinnum á ári. Einnig hafa dag- blöðin haldið úti sjávarútvegs- kálfum, t.d. Morgunblaðið, þó svo að það sé ekki lengur gert. Þá má ekki gleyma stór- aukinni upplýsingagjöf á net- inu. Forsendur til útgáfu blaðs eins og Ægis eru því allt aðr- ar en hér á árum áður. Engu að síður hefur blaðið hlut- verki og skyldum að gegna og margt birtist þar sem aðrir fjölmiðlar birta ekki. Blaðið hefur því sem fyrr miklar skyldur við sjávarútveginn og lesendur sína Æ G I R H U N D R A Ð Á R A Hvalveiðar handan við hornið? Mér sýnist allt stefna í að við fáum að veiða hrefnu á næsta ári og í framhaldi af því kemur hvalurinn líka. Við þurfum hugaða stjórnmálamenn sem þora að taka djarfar ákvarðanir. Að vísu hefur mér heyrst að forsætisráðherrann sé ekki alveg sáttur við þetta, en kannski verður hægt að beygja hann. Eitt er víst að ég er klár í slaginn og færi á morgun ef kallið kæmi. Þetta á allt saman að geta gengið saman. Við getum alveg búist við einhverjum vandræðum en ef menn eru undir þau búnir á vel að vera hægt að leysa úr þeim farsællega. Réttlætið hlýtur að sigra að lokum, jafnvel þótt það taki lang- an tíma. (Sigurður Njálsson, hvalaskip- stjóri, í viðtali við Ægi í júlí 1997) Alltaf skrefi á undan Norð- mönnum Við höfum unnið dyggi- lega að fiskverndun síð- ustu áratugi og tekið upp eitt strangasta kvótakerfi sem þekkist. Alltaf skrefi á undan Norðmönnum. Hvað varðar rányrkju vil ég segja að flestir fiski- stofnar innan íslensku lög- sögunnar eru í þolanlegu horfi nema þorskurinn. Það er því ofmælt að Ís- lendingar hafi eyðilagt eig- in fiskimið með fyr- irhyggjuleysi. Það er rétt að við höf- um veitt umfram ráðlegg- ingar fiskifræðinga en það hafa Norðmenn einnig gert og hlutfallslega meira en Íslendingar. Þeir kasta því steinum úr glerhúsi. Hvað varðar meintan norskan-rússneskan stofn hafa Norðmenn sakað Rússa um að hafa hvað eftir annað farið fram úr veiðiheimildum, eitt árið sem nam meira en 150 þúsund tonnum. (Jón Baldvin Hannibals- son, utanríkisráðherra, í við- tali við Ægi í september 1994) Auglýsing frá R. Sigmundssyni árið 1963. Auglýsing frá Birni og Halldóri hf. árið 1981.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.