Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.2007, Síða 42

Ægir - 01.03.2007, Síða 42
42 að fram komi hvers konar mat á stofnstærð og afrakstri liggur fyrir því óneitanlega felst meiri áhætta í stjórnunar- aðgerðum sem hvíla á léleg- um upplýsingum samanborið við þær sem hvíla á traustu mati. Þannig skiptir máli hvort stofnar séu metnir á grund- velli áreiðanlegra gagna, vel skilgreindra reiknilíkana og á grundvelli vel ígrundaðrar fyrirfram ákveðinnar langtíma nýtingarstefnu eða á grund- velli lélegra gagna og lítt skil- greindra aðferða eða stefnu. Þar sem mikill gagnaskortur er, eru matsaðferðir eðlilega frumstæðar og er ástæða til að draga athygli að því í út- víkkaðri ráðgjöf enda þá meiri varúðar þörf við stjórn- un veiða og við aðra ákvarð- anatöku. Áhrif veiða á marktegund, brottkast og óbeinan veiðidauða Til að kortleggja áhrif veiða á viðkomandi marktegund (þ.e. þá tegund sem sóknin beinist að, gjarnan skipt eftir veið- arfæri og svæðum) og stöðu þekkingar, væri hægt að hugsa sér að nota huglæga matsaðferð eins og sýnd er á myndum 1a og 1b. Í hverju tilviki yrðu áhrif veiðanna á marktegundina metin (áhrif á stofnstærð, samsetningu stofns, viðkomu, útbreiðslu og erfðasamsetningu) þar sem gefin yrði einkunn frá 0 (ekkert veiðiálag) til 10 (mjög mikið veiðiálag). Síðan væri hægt að kortleggja aðra mik- ilvæga þætti með einfaldri huglægri flokkun, t.d. í þrjá flokka, þar sem grænt gæfi til kynna hvort viðkomandi þátt- ur væri í lagi eða honum ekki ábótavant, gult kallaði á nokkra aðgæslu eða lýsti skorti á gögnum og/eða frek- ari greiningu án þess að sér- stök eða greinanleg hætta væri á ferð, og rautt gæfi til kynna að þörf væri á veru- legri varúð, að upplýsingar skorti og/eða að vísbendingar væru um slæmt ástand. Þó svo að unnt sé að gefa hug- lægar einkunnir eins og hér hefur verið lýst, er auðvitað æskilegt að búnir séu til gagnsæir vel skilgreindir mælikvarðar þar sem því verður við komið, enda gagn- semi kerfisins mun meira ef þættir eru magnlega metnir. Mikilvægt er því að vinna markvisst að þessu svo kerfið gefi sem gleggsta mynd af stöðu mála. Með þessu vinnulagi væri skoðað hvort fyrir lægi mat á viðkomandi þætti, hvort regluleg vöktun á honum sé í gangi, ef gögn eða mat skort- ir, hvort hægt sé að segja til um það hvort það skipti máli varðandi þessa veiði eða ekki. Að lokum yrði skráð hvort aðgerða sé þörf, þ.e. hvort ástandsmatið kalli á við- bótar rannsókn, eða hvort þörf sé sérstakrar árvekni og/ eða aðgerða stjórnvalda varð- andi viðkomandi veiði. Þann- ig fengist með einföldum hætti hugmynd um stöðu við- komandi stofns m.t.t. ástands hans, þekkingarstigs og þess hvort þörf sé sérstakra að- gerða til að tryggja sjálfbærni veiðanna. Með sama hætti yrðu áhrif veiða á marktegund á brott- kast sömu tegundar skoðað, áhrif þessara veiða á brottkast á öðrum tegundum og einnig óbeinn fiskdauði (fiskur sem drepst en kemur ekki um borð) sem fylgir veiðunum. Á mynd 1a er til skýringar eðli málsins ímyndað dæmi um þorskveiðar í botnvörpu á Íslandsmiðum, þar sem mestu máli skiptir að veiði- álag hefur verið mikið um langan tíma og mikilvægt er að stjórnvöld grípi til aðgerða til að tryggja aukinn langtíma afrakstur stofnsins. Hér eru áhrif þorskveiðanna á þorsk- stofninn mikil, vitneskjan eða matið á ástandi hans er í lagi, einnig vöktun stofnsins, en þörf er fiskveiðistjórnunar að- gerða. Varðandi brottkast á þorski og brottkast á öðrum tegundum og óbeinan fisk- dauða í þessari veiði, gætu áhrifin að því er virðist talist frekar lítil, þekkingin er sæmileg á þessu þó vöktun sé lítil (nema hvað þorsk varðar). Æskilegt er að stjórn- völd séu á varðbergi gagnvart hugsanlegu brottkasti á þorski og að rannsakað verði nánar um brottkast á öðrum teg- undum og óbeinan fisk- dauða. Mynd 1b sýnir til skýringar sambærilegt ímyndað dæmi fyrir nótaveiðar á síld. Þar sem veiðiálag á síld hefur verið afar hóflegt síðustu ára- tugina eru bein áhrif síldveið- anna á stofninn tiltölulega lít- il. Síldin er líka allvel rann- sökuð, nema erfðasamsetning stofnsins, sem nánast ekkert hefur verið könnuð. Vegna breyttrar útbreiðslu síldar undanfarin ár, mætti bæta úr með rannsókn þar á, en al- mennt talað er ekki þörf sér- stakra aðgerða stjórnvalda varðandi veiðar á þessum stofni, allavega saman borið við þorskveiðarnar. Sama gildir um áhrif síldveiðanna á brottkast síldar, brottkast ann- arra fisktegunda eða óbeinan Æ G I R Í H U N D R A Ð Á R Þorskstofninn 8Stofnstærð 8 Aldurs-/lengdar- /kynjahlutföll 8Viðkomugetu O5Útbreiðslu O5Erfðasamsetningu 5Brottkast á þorski O5 Brottkast á öðrum tegundum O5 Óbeinn fiskveiðidauði á þorski og öðrum tegundum Fiskveiði- stjórnun Mat/ Áætlun Skiptir ekki Máli Skiptir máli Aðgerða þörfEf gögn skortirVaktað reglulega Mat/ Áætlun fyrir- liggjandi Mikil eða lítil áhrif Áhrif þorskveiðanna á: Tegund: Þorskur Undirflokkur: Botnvarpa Til staðar eða í lagi Þarf að skoða, hætta?/ekki til staðar Hvorki né / miðlungs hætta O Ekki þekkt eða á ekki við Mynd 1A Síldarstofninn 6Stofnstærð 6 Aldurs-/stærðar-/kynjahlutfall og samsetningu 6Viðkomugetu 3Útbreiðslu O3Erfðasamsetningu 2Brottkast síldar 1Brottkast – aðrar tegundir 1 Óbeinn fiskveiðidauði síldar og annarra tegunda Fiskveiði- stjórnunMat/áætlun Skiptir ekki máli Skiptir máli Aðgerða þörfEf gögn skortirVaktað reglulega Mat eða áætlun til staðar Mikil /lítil áhrif Áhrif síldveiðanna á: Tegund: Sumargotssíld Undirflokkur: Nótaveiðar Til staðar eða í lagi Þarf að skoða, hætta?/ekki til staðar Hvorki né / miðlungs hætta O Ekki þekkt eða á ekki við Mynd 1B Mynd 1. Skýringardæmi um hvernig mætti flokka áhrif þorskveiða í botnvörpu (A) og síldveiða í nót (B) á viðkomandi fiskistofna, brottkast og óbeinan fiskidauða við reglubundnar úttektir á þessum fiskistofnum. Vistkerfisnálgunin er því aðeins tækifæri fyrir okkur Íslendinga til að halda forystunni og gera enn betur en við höfum gert á liðnum árum. Líklegt er að með þessu takist okkur að ganga betur um auðlindina, sem ætti að skila betri afrakstri fiski- stofnanna til langs tíma litið.“ Til staðar eða í lagi Þarf að skoða, hætta?/ekki til staðar Hvorki né / miðlungs hætta O Ekki þekkt eða á ekki við Til staðar eða í lagi Þarf að skoða, h tta?/ekki til staðar Hvorki né / miðlungs hætta O Ekki þekkt eða á ekki við
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.