Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1944, Side 62

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1944, Side 62
156 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR eignarstefnunnar muni fara fram hér á landi. Vér vitum, að þar sem hún komst fyrst á, koslaði hún byltingu og blóðsúthellingu. Vér vitum einnig, að hin blóðuga heimsstyrjöld, sem auðvaldsstefnan hefur hrundið þjóðunum út í, er að dýpstu rótum styrjöld við hina rísandi öldu sameignarstefnunnar. Upp úr þessuni ógnarátökum víkkar sameignarstefnan umráð sín stórkostlega, ekki aðeins með því að skipulag hennar verður tekið upp í ýmsum löndum Evrópu, lieldur með ítökum í hugum fólksins um alla jörð. Styrkleikahlutföll sameignarstefnuogauðvaldsstefnu verða orðin gerbreytt eftir heims- styrjöldina. Ráðstjórnarríkin hafa sýnt þá auðsæju yfirburði í friði og stríði, að skipulag þeirra er orðið lýsandi fordæmi öðrum þjóð- um. Sameignarstefnan er komin í sókn í heiminum, og hefur tryggt aðstöðu sína örugglega. Hún er hin sigrandi stefna, er flæðir yfir og flytur með sér mátt og frjóvgandi líf og frelsi. Eftir þetta kem- ur miklu fremur til greina en áður, hvort nokkra blóðuga byltingu og mannvíg muni til þess þurfa í öllum löndurn að koma sameign- arstefnunni á. Oft bera menn hana saman við kristin.dóminn, og hin römmu átök nú saman við þau átök, er það kostaði að ryðja kristindóminum til rúms. Víða í löndum kostaði það ægilegar blóðs- úthellingar, ekki alls staðar. Oss er minnisstæð sú saga hér á landi, hvernig kristindómurinn komst friðsamlega á með samþykki landsmanna á Þingvöllum. Skyldum vér enn geta borið gæfu til að koma á framtíðarskipulagi sameignarstefnunnar á svipaðan hátt? Ég sé í anda nýja þjóðhátíð á íslandi. Alþingi hefur samþykkt stjórnarskrárbreytingu, er felur í sér, að skipulag sameignarstefn- unnar skuli í lög leitt á íslandi. Hin nýja stjórnarskrá sam- eignarskipulagsins er borin undir þjóðaratkvæði. Áhugi almenn- ings er brennandi, þátttakan í alkvæðagreiðslunni alger, og með yfirgnæfandi meirihluta samþykkir þjóðin bina nýju stjórnarskrá, sem á að tryggja Islendingum einnig hið innra frelsi. Að atkvæða- greiðslunni lokinni er eins og nú stofnað til þjóðhátíðar á Þing- völlum, og þangað flykkjast ungir og gamlir hvaðanæfa af land- inu, og þá alfagnandi, því að enginn uggur er framar í brjósti. Hve sæll sá íslendingur, er þá þjóðhátíð lifir, þann þjóðarfagnað, sem á eftir að hefja þjóðhátíð vora nú í enn hærra veldi. Þingvöllum, 4.—7. júlí.

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.