Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1944, Side 76

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1944, Side 76
170 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR orð um vélastöðina. og á einum stað kallar hún mig ekki ívan, held- ur Eðvarð eða eitthvað svoleiðis. Jæja þá, hugsa ég, nú er kerling- argarmurinn loksins orðin alveg hringlandi band-vitlaus! Líklega hefur hún skrifað allan þennan ástarþvætting upp úr bók, því að hvar gat hún annarsstaðar rekizt á þennan Eðvarð, og hvers vegna er þessi sægur af alls konar kommum í bréfunum? Hún hefur aldrei vitað minnstu baun um kommur, og allt í einu eru þær orðnar svo margar hjá henni, að maður getur ekki einu sinni talið þær. Það gætu ekki verið eins margar freknur í smettinu á nokkrum manni og kommurnar í bréfunum hennar. Og öll þessi uppnefni, fyrst „hænuungi“, svo „kettlingur“ og hvað kemur svo næst? I fimmta bréfinu kallar hún mig líklega „Snala litla“ eða einhverju öðru hundsnafni. Hvern þremilinn á þetta annars að þýða, er ég fæddur í hringleikahúsi, eða hvað? — Þegar ég fór að heiman tók ég með mér kennslubók í dráttarvélafræði — ég hef hana með, ef mig skyldi einhverntíma langa til að líta í bók — og það veit hamingjan, að mig blóðlangaði til þess að skrifa eina eða tvær blaðsíður upp úr þessu riti og senda henni til þess að kvitta fyrir mig, en þegar ég hugsaði mig betur um, hélt ég að hún myndi kannski líta á það sem móðgun við sig. En eitthvað verð ég þó að taka til bragðs til þess að lækna hana af þessari vitleysu. . . . Hvað vilt þú ráðleggja mér, Mikkóla?“ Svíagintseff starði á félaga sinn, og varpaði öndinni mæðulega. Nikolaj lá endilangur á jörðunni og steinsvaf. Það skein í hvítar, misstórar tennur hans undir drúpandi yfirskegginu, og í munnvik- unum mátti greina örsmáar hrukkur — leifarnar af brosi, sem ekki var enn með öllu horfið af vörum hans. Asgeir Hjartarson þýddi.

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.