Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1944, Síða 78

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1944, Síða 78
172 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR eða slítur söguþráðinn, verður að skera miskunnarlaust niður við trog, þótt það sé ekki ómerkt í öðru sambandi. Á hinn bóginn er þó nauðsynlegt að rekja sem flesta þætti menningar og lífsbaráttu þjóðarinnar, til þess að heildarmyndin verði sem skýrust. Skortur heimilda veldur því oft, að slíkt er ekki unnt að gera út í æsar, en þegar heimildamagnið er mikið, þá kemur til kasta sagnaritarans að velja og hafna réttilega. Á því sviði hafa P. E. Ó. orðið mjög mislagðar hendur. I sögunni eftir hann eru feikn af óþörfu efni, er rífur samhengi og gerir örðugra fyrir um yfirsýn. Fyrst og fremst má telja persónusögue/nið. Raktar eru ævisögur allra æðstu embættismanna landsins, skálda og annarra bókmenntamanna og jafnvel rektora latínuskólanna. Hvernig yrði saga stórþjóðanna, ef sagnfræðingar þeirra fylgdu sömu reglum um efnisval? Mikill þorri þeirra manna, sem getið er, voru mjög hversdagslegir, ollu engum tímamótum og afrekuðu fátt markvert til góðs eða ills. Megin- hluti þessa efnis á því alls ekki heima í Islendingasögu, heldur ævisagna- söfnum. Nú er P. E. Ó. einmitt að semja íslendingaævir, sem eiga að koma út, er aðstæður leyfa. Þess vegna var engin ástæða til að stilla ekki meir í hóf um þetta efni í sögunni en gert liefur verið. Ef nauðsyn þótti á að geta allra helztu embættismanna, mátti hafa skrá nm þá og embættisár þeirra aftan við hvert bindi. P. E. Ó. skiptir sögunni í þrjá höfuðþætti: stjórngæzlu (eða stjórnhætti), menningu og menntir og þjóðhagi. Þá skiptingu má vel til sanns vegar færa, en innan fyrsta þáttar ræður persónusagan öllu um efnisskipun að heita má. Slíkt er auðvitað mjög fjarri lagi. Efninu hefði átt að skipa eitthvað á þá leið að hafa sérstaka kafla um kirkjustjóm, alþingi, viðnám íslendinga gegn konungsvaldinu, einveldið og stjórnarfarsbreytingar þær, er það hafði í för með sér, réttarfar, landvöm o. s. frv. En hjá P. E. O. er hin almenna saga að mestu leyti kubbuð sundur og fleyguð inn í persónusöguna. Við það verður samhengið óljóst, og meginatriðin hverfa í skugga aukaatriðanna. í öðrum þætti ber langsamlega mest á bókmenntunum og höfundum þeirra og það svo mjög, að rúmur þriðjungur alls 5. bindis er eins konar bókmennta- saga. Slíkt hlutfall á milli hennar og annarra greina sögunnar nær auðvitað ekki nokkurri átt, ekki sízt þegar ritað er um fremur dapurlegt tímabil í bók- menntalegum efnum, eins og 17. öldin var. Misræmis gætir einnig í því, hversu rækilega er skýrt frá einstökum ritum og höfundum, og fer ]iað ekki ávallt eftir verðleikum. T. d. er Ævisögu Jóns Indíafara, eins hinna merkari rita frá 17. öld, aðeins lauslega getið, og ævi hans er ekki rakin, en miklu rúmi er varið í að skýra frá stórum ómerkari ritum og mönnum. I 6. bindi er bókmenntasagan hóflegri að vöxtum, en annars er hún sama marki brennd. Hins vegar liefði gjarna mátt rekja miklu nánar eðli og orsakir galdratrúar- innar en gert er í þessum þætti. Þriðji þáttur, þjóðhagir, er langveigaminnstur í báðum bindunum, og þar sakna ég margs, sem tvímælalaust hefði átt að standa í Sögu íslendinga. T. d. vantar þar sérstakan kafla iim leiguliða, vinnufólk, lausamenn, þurrabúðar-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.