Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Qupperneq 19

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Qupperneq 19
SVÖR VIÐ SPURNINGUM stíl. Bann við hagnýtingu kjarnorkunnar er því að öllum líkindum það sama og að dæma mannkynið til örbirgðar og afturfarar frá því, sem nú er. Slíkt ástand mundi sízt auka friðarhorfur í heiminum og þá einnig vafasamt, hversu mikið öryggi væri fólgið í slíku banni. Af þeim ástæðum, sem hér eru fram færðar, virðist mér óskynsamlegt að banna framleiðslu efna þeirra, sem notuð eru í kjarnorkusprengjur. Það verð- ur ekki heldur hjá því komizt, að nokkrar birgðir af efnum þessum verði ávallt fyrirliggjandi. Sé hinsvegar með kjarnorkuvopnum aðeins átt við fullgerðar kjarnorku- sprengjur verður krafan um bann við framleiðslu þeirra meinlaus, en tiltölu- lega gagnslítil. Vissulega væri mikið unnið við að allt fjármagn, sem nú renn- ur til framleiðslu á kjarnorkuvopnum, væri notað til þess að hagnýta kjarn- orkuna á skynsamlegan hátt, en það mundi ekki hindra það, að hægt væri að hefja framleiðslu á kjarnorkusprengjum með mjög stuttum fyrirvara. Ég held að við verðum að sætta okkur við orðinn hlut og viðurkenna þá staðreynd, að mannkyninu hafa verið fengin meiri völd í hendur en það hafði áður. Þessum völdum getur það ekki afsalað sér. Trú mín er sú, að hin auknu völd eigi eftir að þroska mannkynið og kenna því að láta skynsemina ráða gjörðum sínum. Eitt er víst, en það er að styrjaldir á borð við heimsstyrjald- irnar síðustu, þar sem hver aðili vinnur óvininum allt það tjón sem hann má, verða ekki háðar framar. Ef til styrjaldar kemur á milli stórveldanna í fram- tíðinni verða styrjaldaraðilar stöðugt að bera hagsmuni óvinarins fyrir brjósti, að öðrum kosti verður aðeins um að ræða eina styrjöld — sjálfsmorð mannkynsins. Að öllu samanlögðu álít ég að þessi aðstaða eigi eftir að auka gagnkvæma virðingu þjóða í milli og kenna fulltrúum þjóðanna betri umgengnisvenjur en hingað til hafa verið við hafðar. í stuttu máli get ég sagt, að ég er í aðalatriðum fylgjandi viðhorfi því, sem birtist í ávarpi heimsfriðarráðsins. Þó get ég ekki sætt mig við neina þá ráð- stöfun, sem torveldar friðsamlega notkun kjarnorkunnar og álít að bann við framleiðslu kjarnorkuvopna sé gagnslítið. Ég álít að vænlegasta ráðið til þess að koma í veg fyrir kjarnorkustyrjöld sé að leggja áherzlu á almenna fræðslu um undirstöðuatriði kjarnorkuvísindanna, hvaða vald þau leggi í hendur mannkynsins og hvaða árangri sé hægt að ná með beitingu þessa valds, bæði til uppbyggingar og eyðileggingar. Af fræðslu um áhrif kjarnorkuvopna leiðir almenn fordæming á því að beita tímarit máls og mennincar 129 9
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.