Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Blaðsíða 42

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Blaðsíða 42
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR um skarkala eða fýrverkeríi, en þó þarf enginn, sem séð hefur hatt hans, að efast um að hann er klár í hvað sem er og sólíd karakter og ekta séff .. “ Hnykkurinn var í fullum húmmer þennan dag, talaði langt mál og sló um sig með útlenzkunni af meiri list en nokkru sinni fyrr og hreif mig svo að ég hrópaði „Heyr!“ hvað eftir annað. En sálarlíf eldri mannanna hafði ennþá ekki tekið þeim breyting- uin að þeir gætu talizt vera orðnir lið- tækir hyltingarseggir. „Þú segir það, Eggert minn,“ sagði Onundur klaki. „Þú segir það, að við eigum að fara að rísa upp á móti vfir- manni okkar, bara af því það er kom- inn hingað nýr maður með hatt. Ver- ið getur það. Það getur svo sem meira en verið. En getur ekki líka verið, ég varpa því bara svona fram til athug- unar, getur ekki líka verið, að þó við losnuðum við Eyjólf, þá fengjum við kannski ekkert hetri verkstjóra? Kannski fáum við betri verkstjóra. Það getur svo sem vel verið. En getur ekki líka verið að við fáum bara verri verkstjóra? Bezt get ég trúað því að við fáum bara verri verkstjóra.“ „Segjum tveir,“ sagði Þórður í Sveinsbæ. „Skil auk þess ekki að þetta sé sá hattur að allt þurfi að fara á ann- an endann út af honum. Annan eins hatt hefur maður nú séð.“ Og Pétur Extralong sagði: „Ta er som maður segir: Visa mér ikke hattinn; visa mér heldur ta som under liggur.“ Þegar við gengum aftur að verkun- arhorðinu, sagði Eggert við mig: „Allt kalkað saman, allt klosskalkað saman í hausunum á þessum gömlu andskotum.“ Það sauð í honum reið- in yfir því hvernig flóðöldur hinnar miklu ræðusnilldar hans brotnuðu alltaf á þessum þremur klettadröng- um þeirrar spakvitru vesældar sem er kölluð lífsreynsla. Og ég skildi hann vel. En þó undarlegt megi virðast, þá var það ekki hinn mælski Hnykkur sem hóf uppreisnina í verki, heldur var það hinn friðsami og orðvari guðsmaður Önundur klaki. Undir hættitíma þennan sama dag þurfti Eyjólfur að bregða sér inn í bæ og setti Svein til að njósna um okk- ur á meðan, og leið þá ekki á löngu unz Sveinn var kominn, samkvæmt venju sinni, eins og feit rotta að borð- inu til okkar og búinn að kasta hnefa- fylli af salti framan í Önund klaka. Og meðan Önundur stóð og þurrkaði saltið úr augunum, spurði Sveinn: „Segðu mér í trúnaði, Klaki sæll, hvernig heldur þú að þessi frægi frels- ari þinn hafi farið að allan þennan tíma sem hann liékk á krossinum án þess að geta nokkru sinni skroppið frá?“ Hin tárfullu augu Önundar urðu allt í einu eldhvöss og skutu gneistum. 152
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.