Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Síða 49

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Síða 49
HATTAR þessa síðustu ósvífni okkar athuga- semdalaust. En okkur skjátlaðist. Eyj- ólfi mun hafa fundizt að hér hefði loks verið slett þeirri keilu sem fyllti skutinn. Beint yfir höfðum okkar var skons- an með ljósamótornum, og lúga þar í loftinu til að hífa upp um tunnurnar með olíunni sem knúði mótorinn. Þessi lúga var nú allt í einu opnuð, og þegar við litum upp, blöstu þar við okkur sigrihrósandi andlitin á Eyjólfi verkstjóra og Sveini á Sömuskoðun. Þið munið eftir gömlu vélbátunum sem fyrstir komu hingað, þessum sem höfðu Dan-mótorana með dobula kraftinum. Hávaðinn þarna niðri hjá okkur varð nú eins og í vélarúmi þeirra; ég treysti mér ekki til að lýsa þeim hávaða nánar. En eftir andartak var Eyjólfur aftur kominn á milli okkar Eggerts. Hann þreif í sitt hvort eyrað á okkur, dró þau að tranti sín- um og öskraði: „Kjaftið þið nú, helvítis aumingj- arnir ykkar.“ Sveinn á Sömuskoðun stóð fyrir aftan hann með sitt viðurstyggileg- asta glott í skítugu fésinu. Að svo búnu gengu þeir burt. Þetta átti sem sé að verða rothögg- ið á byltingartilraun okkar: Evjólfur ætlaði sér að kæfa frelsisbaráttu okk- ar í mótorskellum. En skamma stund verður hönd höggi fegin, og i gegnum þá lúgu sem þú opnar til höfuðs and- stæðingum þínum kann að koma aflið er sigrar þig sjálfan. Hávaðinn í ljósamótornum bitnaði nefnilega harðast á Þórði í Sveinsbæ. Að vísu var hann þungbær fyrir okk- ur alla, enda höfðum við hellur fyrir eyrunum á kvöldin og komum heim til okkar eins og þreyttir hermenn úr stórskotahríð, sljóir og vankaðir. En fyrir Þórð í Sveinsbæ táknaði hávað- inn annað og meira en truflun á taugakerfinu og röskun á heyrnarfær- unum, hann stofnaði í bráðan voða embættisheiðri hans. Því að nú gat Þórður ekki lengur heyrt til sjálfs sín við að telja á vigtina. Við sáum á svip hans að þessi voðalegi hávaði gerði hann með hverjum klukkutímanum áhyggjufyllri og óstyrkari. Ljósamót- orinn var að ræna hann sj álfstraust- inu. Enn var Þórður þó að því leytinu sjálfum sér líkur, að hann lét sem ekk- ert væri. Við höfðum tekið upp þann sið að fara út úr húsinu í kaffitímun- um og sitja þar á síldartunnum meðan við drukkum, því að enda þótt frost væru nú mikil, fannst okkur þyngri á metunum kyrrðin með kuldanum úti en hlýjan með mótorskellunum inni. Og í seinni kaffitímanum tveim dög- um eftir að lúgan 'var opnuð gerði Eggert enn eina tilraun til að vekja samiið Þórðar með málstað frelsisins. „Hafi einhver tvívlað það hingað til að Eyjólfur verkstjóri er fæddur skítakarakter og verður aldrei annað 159
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.