Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Blaðsíða 46

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Blaðsíða 46
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR munduð frekar láta kúga ykkur til að standa tóbakslausir og hlandblautir allan ársins hring, heldur en resíkera því að missa eina auðvirðilega stöðu sem enginn alminlegur maður mundi vilja skítnýta. Þú ert bræddur, Þórð- ur í Sveinsbæ, þú ert drulluhræddur um að verða látinn hætta að telja ef þú stendur með félögum þínum í því að setja stopp á þá glæfrastarfsemi sem rekin hefur verið hér á þessum virinustað. Það er öll historían.“ Umræðan var sem sé að nálgast suðumarkið og mennirnir báðir orðn- ir heitir og rauðir. En þá vissum við ekki fyrr til en Sveinn á Sömuskoðun stóð allt í einu yfir okkur, og hans grómtekna andlit var afskræmt af heift. Við sáum strax að nú átti að hefna þeirra ófara sem yfirvöld salt- fisksins höfðu mátt þola upp á síð- kastið. Við höfðum það á tilfinning- unni að Eyjólfur verkstjóri stæði ein- hversstaðar á gægjum. Sveinn þreif í öxlina á Onundi klaka. „Á fætur!“ öskraði hann. „Á fæt- ur með þig, andskotans heilagleika- pissarinn þinn! Á fætur með vkkur alla, helvítis draugarnir ykkar! Klukkan er að verða, og þið eigið eft- ir að binda á ykkur brigðin!“ En Önundur klaki sannaði hér enn, að kraftur byltingarinnar getur orðið mestur í verki þar sem hann er minnst- ur í orði. Hann spratt upp eins og fjöður, keyrði Hina helgu bók í höf- uðið á Sveini og mælti um leið: „Einu sinni skaltu þó geta sagt, að þú hafir fengið Guðsorð í hausinn.“ Höggið var svo mikið, að Sveinn féll við, og lá nokkur augnablik eins og dauður. Síðan staulaðist hann á fætur og skj ögraði burt. I lok þessa ástríðufulla kaffitima bættist nýr maður í hóp okkar sem áttum eftir að setja á okkur vettling- ana og brigðin þegar klukkan var orð- in: Sá bljúgi Drottins þjónn, Ónund- ur klaki. Eftir þetta virtum við Eggert að vettugi öll kúgunarlög Eyjólfs verk- stjóra. Við tókum í nefið þegar okk- ur sýndist og fórum að því með allri þeirri heimspekilegu ró sem tilheyrir þessari þjóðaríþrótt íslendinga. Við snýttum okkur hátt og tignarlega, brutum vasaklútinn saman af dæma- fárri umhyggju, stungum honum á okkur af einstakri reglusemi, helltum tóbakinu á handarbakið af vísinda- legri nákvæmni, bárum það upp að nefinu með hátíðlegri stillingu, og sugum, ógnarvarlega framan af, svo að fyrstu kornin kæmust vel upp í slímhúð þessa dásamlega líffæris, hertum svo smámsaman á, og það síð- asta tókum við inn með þvílíkum krafti að hvein við. Stóðum loks kyrr- ir svolitla stund og lygndum aftur augunum og einbeittum öllu tauga- kerfi líkamans að þeim miðpunkti ver- aldlegrar sælu sem nýfyllt nef af tó- baki er og verður alltaf. Líka skrupp- 156
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.