Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Blaðsíða 50

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Blaðsíða 50
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR en skítakarakter,“ sagði Eggert, „þá hlýtur sá hinn sami þó, sakaríana boldang, að vera búinn að skilja það núna. Þið vitið það bezt sjálfir, að þetta nýjasta bullutrix Eyjólfs, þetta lúgusvínarí, er á góðri leið með að gera okkur alla hysteríska og vitlausa. Þið finnið það eins vel og ég, að ef við ekki grípum til einhverra gagnráðstaf- ana, og það eins og skot, þá megum við eiga von á að þessi andskotans mótor geri okkur alla að slefandi aum- ingjum og skjálfandi roðhænsnum fyrir lífstíð. Að minnsta kosti ættir þú að finna þetta, Þórður, því að hvernig getur þú treyst því að telja rétt á vigt- ina þegar þú heyrir ekki lengur í sjálf- um þér fyrir skarkalanum? Auðvitað getur aldrei orðið úr því annað en idjótí og della.“ „Skil ekki það springi í manni sundmaginn af svolitlu vélarskrölti,“ sagði Þórður. „Annað eins hefur maður nú þekkt. Hinsvegar sýnist mér það koma úr hörðustu átt þegar þú ert að hneykslast á hávaðanum, Eggert hnykkur, því að hver hefur kallað hann yfir okkur ef ekki einmitt þú með öllu kjaftæðinu? Og nú er það komið á daginn, sem ég spáði, að af hatti þessa sveitamanns mundum við aldrei hafa annað en bölvun.“ „Eru þá engin takmörk fyrir því hvað þú getur lagzt lágt í rótarskapn- um gagnvart þeim sem vilja hífa þig upp úr skítnum og í þjónkuninni við þá sem traðka á rétti þínum?" spurði Eggert. „Er þá engin rassskelling svo sár, að herra Þórður Þórólfsson í Sveinsbæ taki henni ekki með bukki og takkskaldíha?“ „Ég er búinn að segja að ég læt ekki hvaða fífl sem er spila á mig eins og fimmfalda harnionikku,“ sagði Þórður. „Það er allt og sumt.“ Þeir voru sem sé aftur orðnir vond- ir, og ég hvíslaði að Eggerti að hann skyldi þegja. En eins og þegar mun ljóst orðið af þessari frásögn var Hnykknum margt betur gefið en diplómatísk lagni í viðræðum. Hann sagði: „Er það satt sem kerlingin þín seg- ir, Þórður, að þú sért farinn að telja vitlaust upp úr svefninum?“ Þórður svaraði þessu engu, en varð eins og aldamótakarfi í framan; og datt mér ekki annað í hug en að Egg- ert hefði nú fælt hann fyrir fullt og allt frá þátttöku í byltingunni. En það var eins og frelsi okkar yrði nú allt að vopni. Rétt í þessu sáum við hvar Eyjólf- ur verkstjóri kom neðan frá pakkhús- inu og var auðsæilega með dampinn uppi. Hann gekk rakleitt þangað sem við sátum, sneri sér að Þórði og sagði: „Fiskimatsmaðurinn segir það sé vitlaust talið í pakkana.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.