Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Blaðsíða 57

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Blaðsíða 57
JAKOB BENEDIKTSSON Skáldið og maðurinn Rœða jlutt í Háskóla Islands á bókmenntakynningu Stúdentaráðs, helgaðri Halldóri Kiljan Laxness, 6. marz 1955. IAlþingiskantötu til söngs eftir 1930, sem Halldór Kiljan orti sumarið eftir Alþingishátíðina, fer hann dálítið ógætilegum orðum um hin opinberu hátíðaljóð, ámælir skáldunum meðal annars fyrir það að hvergi sé Mosfellssveit í kvæðum þeirra, og heldur siðan áfram: Þér minnist hvergi á mjólkurbúin nýu, munið ekki eftir verkalýðnum horska sem dregur úr sjónum þúsund miljón þorska — og það fer mest í sukk og óráðsíu. En sjálfan manninn naumast nefna má, þér nennið ekki að yrkja um vegi landsins, né dalinn þar sem dafna lömbin mín. Ekki veit ég hvort þessi orð skálds- ins vöktu nokkra sérstaka athygli þeg- ar þau komu á prent haustið 1930, nema hvað einhver kann að hafa hneykslazt á þvílíku gáleysistali. En sé að því gætt hvað höfundur þeirra hafði með höndum þegar þau voru sett á blað, má færa að því góð rök að þeim hafi fylgt meiri alvara en ætla mætti við fyrstu sýn. Á þessu sama sumri var Halldór að ganga frá fyrri hlutanum af Sölku Völku og hafði árið áður gert fyrstu frumdrögin að Sjálfstæðu fólki. Hann var nýkominn heim úr Ameríkuför sinni, kominn að nýjum niðurstöðum um hlutverk sitt, köllun sína sem skálds, stóð á þröskuldi nýrra og mik- illa afreka. Og þó að orðin sem ég til- færði hafi naumast verið hugsuð sem nein stefnuskrá, þá sýna þau nokkuð hvað höfundi var efst í huga. Að baki lá Vefarinn mikli, þessi furðulega bók, sem ekki aðeins er ein- stæð í íslenzkum bókmenntum, heldur má lengi leita að annarri slíkri í sam- anlögðum heimsbókmenntunum, bók þar sem rösklega tvítugur maður frá útkjálkalandi lýsir með annarri eins orðgnótt og hita þjáningarferli æsku- manns andspænis heimsmenningunni og kristnum dómi á upplausnarárun- um eftir heimsstyr j öldina fyrri. 167
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.