Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Side 32

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Side 32
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR það mætti þá vera meiri verðmismun- urinn. Onundur hafði jafnan með sér stóra Biblíu í nestistöskunni sinni og las í Gamlatestamentinu meðan við drukkum morgunkaffið, en meðan við drukkum eftirmiðdagskaffið las hann í Nýjatestamentinu. Eggert hnykkur sagði að Önundur klaki væri rarítat. Færeyingurinn hét Pétur, og er það í sjálfu sér engin frétt, því að annar hver Færeyingur heitir Pétur. Hinir heita Jeggvan. Pétur var mjög hár maður vexti og sinaber. Þegar hann kom fyrst til Þangfjarðar var þar bú- settur annar Færeyingur sem hét líka Pétur en hafði ættarnafnið Long, stuttur maður og digur og fluttist skömmu seinna aftur til Færeyja. En þessi nýi Pétur fékk viðurnefni af honum og var nefndur Pétur Extra- long. Hann var mjög rólegur maður og talaði ennþá færeysku eftir þessi 30 ár meðal íslendinga, og það sem hann sagði, sem ekki var mikið, bjó allt yfir dularmætti djúprar speki. Og sjálfsagt hefur það allt verið færeysk speki. Stundum var þessi speki auð- skilin, stundum alveg óskiljanleg, en mönnum fannst hún venjulega hitta vel í mark, sérstaklega þegar hún var óskiljanleg. Pétur fór alltaf á deddsló. Ég hafði verið með honum á snurvoð um tíma, og þegar við höfðum fengið eitthvað lítið og sögðum að nú skyld- um við flýta okkur að gera að þessum skaufa og eiga svo frí þangað til næst yrði híft, þá sagði Pétur Extralong: „Ta kemur fyrir oinki. Hetta hevur oingan enda.“ Þórður í Sveinsbæ tók fiskinn jafn- óðum og við höfðum skorið úr hon- um hnakkablóðið og vigtaði 100 pund, en unglingsstrákur einn tók við hverjum hundraðpunda skammti og setti hann á sérstakan trépall og saum- aði þar utan um hann brigði og stafl- aði svo pökkunum á kerrur. Síðan voru pakkarnir dregnir á þessum kerr- um niður í pakkhúsið og geymdir þar unz fisktökuskipið kom. í pakkhúsinu athugaði matsmaðurinn fiskinn, tók stikkprufur og gekk úr skugga um að hann uppfyllti þær kröfur sem til hans voru gerðar, stæði sinn klassa. Þórður í Sveinsbæ var um fimmt- ugt, greindur maður og vel að sér og þó hinn virtasti borgari. Hann var ekki málgefinn, en mjög þýðingar- mikill í tali, og voru þó þagnir hans oft þýðingarmestar. Hann hafði sín- ar einkaskoðanir á öllum hlutum og lét aldrei á sig sannast að sér fyndist neitt til um það sem öðrum þótti merkilegt. Það var hann sem sagði í sólmyrkvanum: „Aldrei bjartara.“ Þórður hafði lengi sigtað upp á það að verða fiskimatsmaður. í þá daga voru fiskimatsmenn skipaðir af Hans Hátign suður í Kaupmannahöfn, sam- kvæmt tilnefningu ráðherra. og þar af leiðandi konunglegir embættismenn. En þegar gamli fiskimatsmaðurinn dó, lilnefndi ráðherrann í embættið 142

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.