Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1962, Blaðsíða 122

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1962, Blaðsíða 122
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR að geta um og ræða opinberlega, eigi að- eins fyrir þá sök, að þarna voru íslenzkir tónlistarmenn að kynna verk sín, — tónlist- armenn, sem allir nema einn- teljast til yngstu kynslóðarinnar, heldur einnig og einkanlega vegna þess, hvers eðlis hún var þessi tónlist, sem ekki varð meðtekin, án þess að maður hlyti að spyrja sjálfan sig með nokkurri áhyggju, hvort þetta væri það, sem koma skyldi eða skilja bæri sem vísbendingu um markmið og stefnu ís- lenzkrar tónlistarþróunar á hinum næstu tímum. Engum væri láandi, þó að hann teldi það hæpna afstöðu til slfkra listmenn- ingarfyrirbæra að ætla sér að afgreiða þau með þögninni, enda jafnan skammgóð lausn á vandamáli að leiða það hjá sér. Ég hef því afráðið, þrátt fyrir allt, að láta nú birtast ofurlitla álitsgerð um þessi mál, ef verða mætti einhverjum til glöggvunar eða orðið gæti til þess að hnekkja fáeinum af öllum þeim firrum, sem margir láta nú bjóða sér í þessu efni. Mun ég þá hafa þann hátt á að skrifa þessa grein öðrum þræði í formi nokkurs konar vinsamlegrar rökræðu við Jón Leifs tónskáld, sem hefur einmitt látið þetta nýja félag og stefnu þess manna mest til sfn taka og lýst yfir því í heyranda hljóði, að hann telji sig eins konar andleg- an ábyrgðarmann hinna ungu manna, sem hér eru að verki, jafnframt því að hann liefur tekizt á hendur að leggja þeim lífs- reglumar í tveim ræðum höldnum í Lista- mannaklúbhnum. í fyrri ræðunni, sem áður er á minnzt, skilgreinir hann félagsskapn- um markmið og kjörorð: „Nokkurs konar víkkun á heyrn manna“ og „Til baka til náttúrunnar og frumhvatanna!", en í þeirri síðari (Vísir 6. maí 1960), sem flutt var beinlínis í tilefni fyrri tónleikanna í Fram- sóknarhúsinu og er að nokkrum hluta dóm- ur um þá, gefur hann hinum ungu tónskáld- um þann ótvíræða vitnisburð, að þau séu í aðalatriðum á réttri leið, jafnframt því er hann boðar þá trú og brýnir fyrir þeim, að öll sú tónsmíðatækni, er verið hafði að þró- ast allt fram til þess, er nýtízkan kemur til sögunnar, sé úrelt orðin og gertæmd að möguleikum listsköpunar. Um öll þessi at- riði og mörg fleiri er ég Jóni algerlega ósammála og tel raunar, að með þessari heyrnarvíkkunar- og frumhvatakenningu sinni, uppstillingu elektrónskunnar sem há- marks nútíma tónlistarþróunar og öðru fleira, sem fram kemur í fyrrgreindum ræð- um hans, sé hann einmitt, að vísu óviljandi, að afvegaleiða hina ungu menn, þar sem hann telur sig vera að leiðbeina þeim. Mun ég leiða rök að þessu í athugunum þeim, sem hér fara á eftir. 2. Nýstárleg tónlist En þar sem aðaltilefni þessarar greinar eru áðurnefndir tvennir tónleikar, sem gagnrýnendur hafa verið svo feimnir við að minnast á, eða öllu heldur það tímanna tákn, sem þessi tónlistarflutningur virðist vera, verður víst ekki hjá því komizt, áður en lengra er haldið, að herða nú upp hug- ann og drepa stuttlega á tónverkin, sem þar voru til áheyrnar, til þess að eftirfarandi hugleiðingar megi birtast í réttu ljósi þessa tilefnis, ef svo mætti að orði komast. Eins og skilja hefur mátt af því, sem áð- ur segir, var þama á ferðinni tónlist, sem bar á sér öll einkenni nýtízkunnar, eins og hún hefur svæsnust orðið á hinum síðari tímum í eltingarleik sínum við auðkeyptar áhrifabrellur. Lítum til dæmis á upphafsatriði fyrri tónleikanna, þrjú sönglög eftir Jón Ásgeirs- son, sem hefur þó sýnt hæfileika til tón- smíða. Hví var laglínan þama svona ósönn og óeðlileg? Skyldi ekki ástæðan vera sú, að höfundur vildi vera nýtízkur fyrir hvern mun og hvað sem tautaði? Þeir Leifur Þórarinsson og Fjölnir Stef- 392
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200
Blaðsíða 201
Blaðsíða 202
Blaðsíða 203
Blaðsíða 204
Blaðsíða 205
Blaðsíða 206
Blaðsíða 207
Blaðsíða 208
Blaðsíða 209
Blaðsíða 210
Blaðsíða 211
Blaðsíða 212
Blaðsíða 213
Blaðsíða 214
Blaðsíða 215
Blaðsíða 216
Blaðsíða 217
Blaðsíða 218
Blaðsíða 219
Blaðsíða 220
Blaðsíða 221
Blaðsíða 222
Blaðsíða 223
Blaðsíða 224
Blaðsíða 225
Blaðsíða 226
Blaðsíða 227
Blaðsíða 228
Blaðsíða 229
Blaðsíða 230
Blaðsíða 231
Blaðsíða 232
Blaðsíða 233
Blaðsíða 234
Blaðsíða 235
Blaðsíða 236

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.