Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1967, Page 36

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1967, Page 36
Tímarit Máls og menningar hafa sett saman um móðurmál sitt; og þetta er ekki nema fyrsta bindið og von á fleirum. Ossetar hafa flestir hverjir til skamms tíma verið kristnir að kalla; þeim mun þó einatt hafa brugðið til forns siðar þó turnast létu um skeið, og er þess getið í bókum sumsstaðar að þeir ræki biskupa úr landi þá er þeim tók að leiðast prjál þeirra. Kristnir dýrðarmenn hafa smámsaman verið teknir í goðatölu og fornkappa; til að mynda er sagt að Sántipétur byggi fyrir sjó neðan, og er höll hans af perluskel, gólf af skæru gleri, en dagstjarnan blikar í ræfrinu. Dóttir hans var Dzerassa, væn kona; og er hún andaðist var hún lögð í haug. Þá er það eitt kvöld, heyra menn ölteiti úr haugnum, fara til og sjá hvar Sántigeorg situr hjá konunni, og eigast við gamanrúnar. Þau áttu dóttur þá er Satana hét, og brá af fríðleik hennar frá öðrum konum, svo að þótti sem dagur væri um loft allt þar er hún var, en orð hennar snörp sem ör og bitur sem sverð. Til voru þó í fyrri daga nokkrir kynþættir sem hnigu að múhameðstrú; ekki mun sá siður samt hafa verið forn í landinu. En þegar Rússakeisari var að brjóta undir sig hin norðlægari Kákasuslönd um miðja öldina sem leið, stukku þessir kynþættir úr landi og fleiri nágrenndarþjóðir sem ekki vildu búa við stjórn kristinna manna, og fóru búferli sínu til Tyrklands; voru Sir- kassar þeirra fjölmennastir. Ekki sparði Tyrkjasoldán eggjunarorðin, en Englendingar, bandamenn hans, blésu í glæðurnar. Hinir landflótta menn máttu þola ógurlegar þrautir og volæði í Tyrklandi, og hrundu niður þúsund- um saman úr harðrétti; aðrir lögðust út með ruplun og ránskap. Þeir sem af komust, settust að víðsvegar í Tyrkjaveldi og sömdu sig smátt og smátt að þarlendum lífernisháttum, hafa þó margir varðveitt þjóðemi sitt og mál; samt væri synd að segja að yfirvöldin hafi liðsinnt þeim við það. A meðal þessa fólks var einnig Temírbolat nokkur af Mamsúrs-ættkvísl, nafntogað skáld; hann tók sér bólfestu í þorpi ekki alllangt frá Sívas í Kappadósíu. Og nú stendur lítillátur sögumaður þessara blaða hér á Halýsbökkum einn morgun snemma á túnaslætti, og gengur fyrir hvers manns dyr spyrjandi: — Ekki vænti ég hér leynist kerlingarhimpi í kör, sem það fólk kom bú- ferli sínu norðan úr Kákasusdölum þá tíð þegar amma Stalíns var ung, og kalli vatnið don og daginn bon og kunni að fara með sögur af garpinum Úr- úsmag bónda Sötunu og af Soslan, honum vildi enginn hlutur vinna mein, ell- egar af Syrdon hinum lægjarna er flestu illu hefur valdið með Nörtum, og bar liann þó hugvit og ráðkænsku af öðrum mönnum. Eða hvort man nú nokkur Temírbolat Mamsúrsson, skáldið? 130
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.