Tímarit Máls og menningar - 01.09.1967, Blaðsíða 47
hvað í þeim býr segi ég! En það er
nú samt alltaf svolítiÖ nálegt að
hugsa um hvað maöur æpti. Það var
ekkert nema einlægur hasinn sem
dreif mann áfram í pólitíkinni. Gat
talað von úr viti. Maður þurfti nú
ekki að hafa fyrir því að púnkta nið-
ur í þá daga, enda var ekki sjaldan
komið að púltinu og klappað á öxlina
á manni. Svo furöulegt sem það kann
nú að vera þá virðist því erfiðara að
tala því meira sem maður veit. Ó,
það kvelur mig alltaf að hugsa um
það. Vita ekki fyrr en eftir að maöur
var húinn að tala á fleiri fundum, að
manni var eiginlega otað fram sem
einhverjum toppgosa. Séra Georg á
þó þakkir skildar fyrir að aðvara
mig. Hann fór fínt í það. Hann gaf
mér þetta allt í skyn fremur en segja
það beinum orðum. Það sárnaði mér
mest. Maöur þekkti ekki nógu vel
heimspekilega afstöðu flokksins til
þjóðfélagsmálanna. Svo bætti ekki
æsíngin úr fyrir manni þegar hitinn
fór að stíga. Hvað þýðir að æpa af
einni saman sannleiksást þótt hún sé
að vísu góð út af fyrir sig? MaÖur
verður að vital Þegar maður veit er
maður líka orðinn kaldur. Hitnar
aldrei, en veit.
Stálnaglastaðreyndir!
Auðvitað eru hinir háu menn
þíngsins ávallt búnir að þaulhugsa
málin á hverjum tíma; maður á
aldrei að þurfa að láta sig reka í
vörðurnar; enda gefa þeir aldrei eft-
/ dropatali
ir. AS öðrum kosti myndi þetta stóð
heimta meir og meir, vaxa yfir höf-
uð manni og refskáka, hætta ekki
fyrr en ástandið væri orðið þannig
að manni gæfist ekki minnsti sjens á
að njóta gáfna sinna á þessum brjál-
uðu umrótstímum hernáms og fram-
kvæmda. Annars er það meiri árátt-
an við þennan tíma: Allir vilj a verða
ríkir!
Ég skal láta það vita að ég er
til!
Hann stóð upp og settist niður.
Hann var heitur og þrifalegur og
spegillinn lítill. Eg get ekki neitað
því að ég á klerki mikið að þakka,
enda er hann bráðgáfaður karlinn og
meistari í listum. Held ég væri ósköp
venjulegur flokksmaður ef ég hefði
ekki notið hans, einn af hinum hrá-
gráa lýð sem ekki fær að heyra
hvernig í raun og veru er brallað í
innstu herbúðum. Og geta svo, ég tala
ekki um, verið eins og maður, vita
hvað maður á að hugsa og geta talað
við þá fullum hálsi . ..
J árnkarl!
Nei, það er ekki nóg að vera sann-
færður ef maður veit ekki. Stjórn-
málasaga, félagsfræði, viðskipta-
fræði og ég veit ekki hverjum ósköp-
um maöur þyrfti að kunna einhver
deili á, afstöðu flokksins til menn-
íngarmálanna, sem er einhver mesta
kúnstin, geta staðið uppí háfleygum
asnakjálkum sem ekkert gera nema
finna að, spýta eitri í skrílinn og fá
141