Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1967, Page 94

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1967, Page 94
Tímarit Máls og menningar menn sem eflaust voru til fengju að njóta sín. En árið 1814 spretta þeir upp, heil fylking gáfaðra manna gneistandi af fjöri og athafnaþörf. Af öðrum greinum má nefna „Forholdene i Norge da Arbeider- partiet ble til“ og „Bergens by“, — nýtur sú síðari þess að höfundurinn er sjálfur af þeim slóðum. Allt er þetta traustur fróð- leikur, en engan veginn þurr, því að Sverre Steen er gæddur andlegu fjöri og stýrir liprum penna. (Gyldendal N. F„ kr. 10,00). Det jeg husker best eftir Sverre Lö- herg stórþingsmann er merkileg heimild um einn þátt úr sögu norsku þjóðarinnar á stríðsárunum. Höfundurinn var ritari Verkamannaflokksins í Skien á Þelamörk við upphaf þýzka hemámsins. Hann átti mikinn þátt í myndun leynilegra and- spyrnusamtaka á þeim slóðum írá fyrstu tíð hernámsins, en þýzka lögreglan varð þess brátt áskynja og tók hann höndum og hófst þá næstum fimm ára löng vist hans í fangelsum og fangabúðum. Löberg segir vel frá og er glöggur mannþekkjari og gam- ansamur. Hann hefur sjálfstæðar skoðanir og hefur ævinlega verið ósmeykur að láta þær í Ijós. Þrátt fyrir þingmennsku sína l flokki Hallvards Lie hefur hann frá upp- hafi verið eindreginn andstæðingur þess að Noregur væri í Nató. Hann kemur hér einnig inn á gang mála eftir stríð. I þeim kafla er frábærlega skemmtileg frásögn af kynnum hans af Johan Schaffenberg lækni, þeim merkilega manni og höfuðskörungi í norskum menningarmálum. (Aschehoug, kr. 36,00 og 45,00). Frihetens öyeblikk eftir Jens Björneboe er skáldsaga sem vakið hefur allmikla at- hygli eins og raunar flest sem sá maður lætur frá sér fara. Að vísu er bókin frem- ur sundurlausir þættir en venjuleg skáld- saga. Ilöfuðpersónan — og eiginlega eina persónan — talar í fyrstu persónu og er lengst af á flakki um meginland Evrópu, yfirleitt drukkinn og gistir helzt í hóruhús- um. Umræðuefni þess sífulla er helzt hryðjuverk og allskonar viðbjóður enda læzt sögumaður vera að skrifa „Bestialitet- ens Historie". Bókin er þann veg gerð að grípa má niðri í henni hér og þar og lesa sér til meiri eða minni skemmtunar — allt eftir um- ræðuefninu — og óneitanlega eru ferða- söguþættir hennar fjörlega skrifaðir og er margt skrýtið hér engu síður en í kýr- hausnum. Ekki dylst hneykslun og reiði söguhöfundar á bak við allar hörmungalýs- ingarnar og að hann vill vekja þá sem sofa og láta sér fátt um finnast þótt enn sé hald- ið áfram misþyrmingu smælingja saklausra og varnarlausra. (Gyldendal N. F., kr. 35,00 innb.). Vetl det siste jjell heitir skáldsaga eftir Magnar Mikkelsen sem ritar gagnorðan stíl og sterkan og fer hann vel efninu sem er hrakningasaga nokkurra fátækra fiski- manna og smábænda og búaliðs norður á Finnmörk árið 1944 þegar þýzka herstjóm- in taldi sér hentugt að eyða þá byggð. Þetta er engan veginn sagnfræðilegt verk, heldur um fram allt skáldverk um við- brögð æðrulausra einyrkja við nýju böli. (J. W. Cappelens forlag, kr. 31,50 innb.). Nefna mætti ýmsar aðrar athyglisverðar bóksögur og smásagnasöfn, — ber þar mest á ungum konum sem skrifa af innri þörf og ráða yfir mikilli íþrótt. Karin Bang hefur þegar ritað nokkurar sögur og birt þrjú Ijóðasöfn. Bók hennar Seilersberget er safn þátta um efni úr átthögum hennar á Vest- fold og eru að öðrum þræði bernskuminn- ingar blandnar munnmælum og forneskju, ævinlega í nánum tengslum við náttúru lands og sjávar. I bókinni eru prýðilega gerðar tréskurðarmyndir eftir Vemund Tollefsen. (J. W. Cappelens forlag, kr. 29,00 innb.). — Ved stupet heitir ástarsaga eftir Mona Lyngar, — og er ekki öll þar 188
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.