Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1969, Page 163

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1969, Page 163
aff játa birtingu heilags anda, þar sem þatS var eina leiðin til að sleppa úr vítískvöl- um helkuldans. Þannig fer bókmenntagagn- rýnin með oss: Sá sem ekki getur játað birtíngu heilags anda í ritum þeim, sem gagnrýni títlaðra bókmenntafræðinga hef- ur tíl skýjanna, hann á þær ógnir yfir höfði sér, að vera útskúfaður úr samfélagi hinna innvígðu bókmenntamanna og fá á sig fordæmingu sem steinrunninn fomgrip- ur. Það kvað skulu þrek tíl að standast þær ógnanir. Skýrt dæmi um einn slíkan þrekskrokk er bæjarstjórinn í Neskaup- stað, og sver hann sig þar í ætt þeirra Urðarteigsfeðga. Hann las þrisvar sinnum Kristnihald undir Jökli og viðurkenndi síðan hreinlega, að hann fyndi aldrei þetta púður, sem hin bókmenntafræðilega gagn- rýni hafði notað í sínar púðurkerlingar, sem sprengdar voru út um allar jorðir. — Nú vil ég ekki láta þess ógetíð, að ég er mjög ósammála bæjarstjóranum um gildi umræddrar bókar eftir Nóbelskáld okkar. En þar hafði gagnrýnin hjálpað tíl að villa um fyrir lesandanum, svo sem hún hefur verið næsta iðin við nú um skeið. Bæjar- stjórinn leitar í bókinni alls annars en þar er að finna og finnur svo ekki neitt og nýtur ekki neins. Hann ætlast tíl, að í þessu hálofaða verki séu leystir einhverjir rammreyrðir hnútar, ljósi varpað yfir ein- hverja dulda þætti mannlegs lífs, vörður hlaðnar sem vegvísar tíl bjartari lífskjara. Þá skal maður heldur leita ullar í geitar- hús en slíkra hluta í bókum Halldórs Laxness eins og nú er komið. En fleina er matur en feitt kjöt. Ég tók mér bókina í hönd ákveðinn að leita ekki neins sérstaks, en vera reiðubúinn að njóta sérhvers þess, sem hún bæri mér í hendur. Vissulega spilltí öll lofgerðarvella gagnrýninnar um þessa bók og allar vangaveltumar og öll spekiyrðin, sem enginn heilvita maður fær nokkurn botn í, þeiiri nautn, sem bókin Þegar blindur leiðir ... tílbjó mér. En þrátt fyrir það þóttí mér hún prýðilegur lestur, fyrsta bók Laxness nú um mörg ár, sem mér finnst sæmandi þeim afburðahöfundi. Við syndugir menn höfum engan rétt til að krefjast þess, að Halldór Laxness sé sami maðurinn og hann var fyrir nokkrum tugum ára, en það má vera okkur mildð fagnaðarefni, að enn lumar hann á sömu snilldinni sem í gamla daga. Að mínum dómi hefur Halldór hvergi náð hreinni heildarblæ en í þessari bók, nema þá ef vera skyldi í beztu smá- sögum og svo Atómstöðinni, sem frá upp- hafi hefur þurft allmikið þrek til að við- urkenna. Bók þessa las ég með óblandinni nautn frá upphafi tíl enda, lifði og hrærð- ist í örlögum persónanna í hinum fram- andlega heimi, þar sem þær lifðu og hrærðust. Ég naut þess mikillega að virða fyrir mér hina fullkomnu jafnvægislist, sem fólgin er í því að þræða markalínuna milli heims raunveruleikans og dulheinm íslenzkrar þjóðtrúar ýmissa alda, svo að hvergi skeikar. Ekki spillti það ánasgju minni, að nú um nokkurt skeið hefur mér virzt sem það væru Halldórs ær og kýr að hafa bókmenntasnobba þjóðarinnar að leik- soppi, búa til í hendur þeim nokkuð vafa- sama hluti til að fá að sjá þá kafa eftír ímynduðum perlum og demöntum og skrifa og tala dulrænum og óskdljanlegum orðum um djásnin, sem þeir þykjast hafa fundið, en eru alls ekki tíl. Það leynir sér ekld, að Halldór hefur kunnað að meta ævin- týrið um nýju fötin keisarans. En með Kristnihaldi undir Jökli hefur honum tek- izt hvort tveggja í senn að leika á bók- menmtasnobbana og gefa okkur listaverk, sem stórskáldi er sannarlega samboðið. H. Það gefur auga leið, hvílík áhrif áróður bókmenntafræðinganna hefur á þróun bók- mennta í landinu. Skiljanlega leggja rit- 25 TMM 385
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.