Tímarit Máls og menningar - 01.12.1971, Page 84
Tímarit Máls og menningar
hef ástæðu til að vita það, af því að mér hefur verið sagt það svo oft. Shake-
speare og Moliére voru leikarar. Moliére var meira að segja góður leikari. Má
ég segja yður svolítið um þá, sem ég get ábyrgzt, að þér hafið ekki heyrt þús-
und sinnum áður? Þeim tókst einhvern veginn báðum að sjá heiimikið af
þeim heimi, sem er fyrir utan veggi leikhúss eða réttara sagt af hinum tveim-
ur heimum utan þess. Þeir fengu af lífinu beina reynslu og auk þess þá ó-
beinu reynslu, sem fengin er með lestri.
Moliére lærði ekki aðeins mikið af trúðum heldur líka af Jesúítum.
Við höfum enga örugga vitneskju um hvað Shakespeare gerði á örlagatug
manndómsára sinna þ. e. á milli tvítugs og þrítugs. Samkvæmt hefðbundinni
trú var hann talinn vera kennari þó ekki í leikskáldskap. Þessari gömlu trú
hefur verið neitað, vegna þess, að menn hafa ekki viljað trúa því, að Shake-
speare kunni að hafa verið fróður maður. Samt sanna leikritin sjálf, að hann
hafði numið og drukkið í sig alla menningu síns tíma. Hann gjörþekkti hugs-
anaferil síns tíma á sama hátt og Thomas Mann gjörþekkti Freud. Þér segið,
að Freud sé líka þekktur á Broadway. Hann er meira að segja eini hugsuður-
inn sem er það. Ó, já, en að gjörþekkja Freud eins og Mann gerði er eitt, en
að hafa snuddað svolítið í freudisma er það sama og að hafa aflað sér lítill-
ar þekkingar, sem er verri en ekki nein.
Er tími til, spyrjið þér, er tími til að lesa nema svolítið. Lífið er raunveru-
legt, lífið er alvara og menn ættu að láta sjá sig oft á Algonquin og Plaza
(tveimur hótelum í New York, þar sem listafólk er tíðir gestir). Þegar salur-
inn fyllist af tóbaksreyk, dofnar hugsunin,
því að baki mér heyri ég ávallt
tímans vængjaða vagn skunda nær.
Og vikuritið Time er ekkert á borð við The New York Times. Ung leik-
skáld fagna hjálp sér hagsýnni heila úr leikhúsheimi. Það er hægt að endur-
skrifa verk þeirra þarna á sjálfu hótelinu. Á ýmsum hótelum er því breytt
jafnharðan og leiktjöldunum í New Haven, Boston, Philadelphiu ...
Svarið við þessu er það, að meiri tími yrði aflögu, ef minni tíma væri eytt
til einskis. Sérhvert tímasparnaðartæki allt frá síma til flugvélar endar með
því að verða tímaeyðslutæki. Fljótaskrift á leikritum, sem fer fram á hótelum
er seinkun á leiksköpun og í rauninni algjör stöðvun. Auðvitað er það rétt,
að leikskáld verða að læra leikhúslist og einkum þá, sem megin máli skiptir:
þ. e. listina að leika. Kvarta mætti undan því, að flest þeirra læri ekki nóg í
henni, sumpart vegna þess, að um leiklist er erfitt að læra og mjög fáir eru
274