Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1971, Blaðsíða 119

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1971, Blaðsíða 119
Skemmtilegt er myrkriS enta sem fæstir hafa tök á að fella um hana sjálfstæðan dóm, en flest gervivís- indi og hindurvitni önnur, auk þess sem hún nýtur sérstakrar verndar einhvers ægilegasta lögregluvalds sem sögur fara af. Bezt þrífst hún þar sem frjáls skoðanaskipti þykja þarflaus og kennarar geta því veitt nemendum sínum sambærilega vernd gegn andlegum áhrifum við þá sem yfirvöld veita fræð- um þeirra með boði og banni. En undir slíkri vernd mun Jóhann Páll hafa numið þau fræði sín sem hann ber á borð fyrir íslenzka lesendur í ritsmíð- inni sem orðið hefur tilefni þessara skrifa. Slíkar eru hinar ytri aðstæður hinnar þýzku frumspekihefðar á okkar dög- um. Og ber mér nú að taka fram að þótt þær séu mér ógeðfelldar neita ég því ekki að við þær hafi eitt og annað verið vel gert í mannlegu samfélagi — og þá í nafni þeirrar stjórnmálastefnu sem að nokkru er sprottin af rótum frum- spekinnar. En þjóðfélagsmál eru ekki viðfangsefni mitt á þessum vettvangi, þó svo að Jóhann Páll kunni að vilja telja sér trú um það, né heldur þær fræðigreinar sem fyrr er sagt að hafi sitthvað af frumspekinni lært, til að mynda hagfræði og félagsfræði. Þó leyfist mér kannski að minna á það að lokum máls míns að hin þýzka frumspeki þáði í arf frá Kant merkilega sið- fræði. En svo vill til að ráða má af Tilraun um manninn, þótt Jóhanni Páli takist það ekki, að ég er heldur hallur undir þessa siðfræði og henni skyld viðhorf við ýmsum vanda atferðisvísindanna. Og það þeirri siðfræði fremur sem oftar helzt í hendur við hvers konar raunhyggju. Sem sagt: hinar ytri aðstæður skipta hér litlu sem engu, heldur hef ég vilj- að drepa á örfá atriði um innri gerð frumspekinnar. Einkum hef ég viljað vekja athygli á því auðkenni hennar sem einna berlegast má ráða af ummæl- um Jóhanns Páls um hinn „óleysta vanda“ í heimspeki Kants og „lausn“ Hegels á þessum vanda, en af þeim orðum virðist freistandi að draga þá á- lyktun að hann hafi ekki hugboð um hvílík þau vandamál voru sem Kant taldi sér ein samboðin. Auðkennið er þetta: frumspekileg hugsun er öldungis agalaus, líkt og óljóð atómskálda sem enginn veit né virðist geta vitað hvort vel eru eða illa ort. Því neita frumspekingar að glíma við öll þau vandamál mannlegrar hugsunar sem heitið geta jafn alvarleg og þau eru erfið viðfangs, til dæmis þá ráðgátu tíma og rúms sem allir mestu andlegir höfðingjar Norð- urálfu hafa staðið frammi fyrir hátt á fjórðu öld. Þessi gáta og aðrar henni líkar krefjast agaðrar hugsunar sem virðist þeim lokuð bók. Þeir virðast ekki einu sinni vita að slíkur vandi er til, hvað þá að hann er þess verður að við hann sé glímt. Þeir skrafa við skýin. Annað talandi tákn agaleysisins má nefna. Karl Marx festi ungur trú á 309
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.