Tímarit Máls og menningar - 01.06.1979, Blaðsíða 11
Adrepur
hvert meiri háttar böl almennings í Kína að fá ekki að kaupa sér Biblíu. En
það blasir auðvitað við samt að hver tilraun til pólitískrar fræðslu í skólum
verður úthrópuð sem pólitísk innræting. Þess vegna er brýnt að þeir sem hafa
trú á eigin pólitíska málstað nái saman, hvort sem þeir hafa trú á borgaralegu
eða sósíalísku þjóðfélagi. Þeir sem vilja í alvöru ala börn upp til að geta tekið
afstöðu í lýðræðisþjóðfélagi verða að koma sér saman um leið til þess og forðast
allt karp við þá sem vilja ekkert annað en pólitíska vannæringu barna.
Miignits Kjartansson
Vörðu landi bætist liðsauki
Þegar bandarískur her settist að á íslandi í síðustu heimsstyrjöld fylgdu her-
náminu skilyrðislaus fyrirheit bandarískra stjórnvalda þess efnis að hernáminu
skyldi aflétt í styrjaldarlok. Þessi fyrirheit voru þó aðeins yfirskin, eins og
dr Þór Whitehead hefur rakið manna skýrast í greinum og í doktorsritgerð
sem ekki hefur enn birst hérlendis. í raun voru bandarískir ráðamenn að taka
til við þráð sem þegar var tvinnaður á síðustu öld, þegar Bandaríkjastjórn
keypti Alaska af Rússum, og það viðhorf kom upp að gera þyrfti Grænland
og ísland að yfirráðasvæði Bandaríkjanna á hliðstæðan hátt. Því hernámu
Bandaríkin Grænland og ísland áður en vesturheimska stórveldið var orðið
formlegur styrjaldaraðili.
í samræmi við þessi viðhorf voru fyrirheitin um brottför Bandaríkjahers
frá íslandi svikin í styrjaldarlok. í staðinn báru bandarísk stjórnvöld fram
kröfu um ævarandi yfirráð á íslandi, herstöðvar á þremur tilteknum stöðum
til 99 ára. Ég hef áður rakið hér í tímaritinu það sem þá gerðist á leynifundum
fulltrúa þingflokka, samkvæmt gögnum Kristins E. Andréssonar sem voru í
fórum mínum en eru nú á handritasafni Landsbókasafnsins (sjá 1. hefti TMM
1977). Kröfum Bandaríkjastjórnar var hafnað vegna heitrar andstöðu íslend-
inga, en þá einsetti stórveldið sér að ná marki sínu í áföngum og hefur nú
tekist það svo vel, að þess verður t. a. m. ekki vart að neinn hernámsandstæð-
ingur sitji á Alþingi íslendinga.
Baráttan gegn ásælni Bandaríkjastjórnar hefur verið háð allt frá styrjaldar-
lokum til þessa dags og hefur birst í hinum margbreytilegustu myndum. Verk-
lýðssamtökin hérlendis hafa frá öndverðu tekið ríkan þátt í þessari baráttu, og
137