Tímarit Máls og menningar - 01.06.1979, Blaðsíða 15
Vilborg Dagbjartsdóttir
Slagbolti
Enginn staður jafnast á við Gránubalann, leikvöll okkar krakkanna á Vest-
dalseyri. I minningunni verður hann eins konar Iðavöliur, þar sem æsir
léku sér í árdaga, íðilgrænn með gullnum flákum af blómstrandi tága-
muru, suðandi hunangsflugum og fiðrildasveim.
Verslun Gránufélagsins með tilheyrandi pakkhúsum og bryggjum stóð
á eyraroddanum, en ofan við hana var stór, grasivaxin flöt, Gránubalinn,
sem náði upp að Eyrarvegi. Onnur hús á Eyrinni stóðu fyrir ofan veginn.
Hár malarkambur lá meðfram balanum að innanverðu og í krikanum, þar
sem fjaran náði alveg upp að götukantinum, skarst inn dálítið lón. Utan
við balann var gilið og árbakkarnir, efra tóku við tún, kartöflugarðar,
brekkur og klettabelti. Þegar stórstreymt var flæddi stundum úr lóninu út
á balann og myndaðist þar tjörn. A vorin var hún stór, því snjór safnaðist
í lægðina og varð af honum mikill vatnselgur og krapi, þegar hann bráðn-
aði í hlýindum. Rósuhúslækurinn rann líka í Tjörnina. A veturna var þarna
gott skautasvell. A sumrin þornaði Tjörnin upp.
I minningunni er alltaf sumar og sólskin og sunnudagur. Þá komu allir
krakkarnir og unglingarnir og líka margt af fullorðna fólkinu saman á
balanum eftir hádegismatinn og það var farið í leiki: Stórfiskaleik, eitt par
fram fyrir ekkjumann, að hlaupa í skarðið, tikken, hringbolta og slagbolta.
Mest gaman var í slagbolta. Allir voru með, líka minnstu krakkarnir. Þeir
sem voru ekki færir um að taka fullan þátt í leiknum voru BB-út, BB-inn
eða jafnvel BB-báðar. Ef einhver möglaði og þóttist orðinn of stór til að
vera BB sættist hann kannski á að vera moli og trítlaði glaður á sinn stað.
Stóru krakkarnir skiptust á laumulegum augnagotum, því þau vissu, að
það þýddi nákvæmlega sama og BB, og að ekki mátti stinga þá. Það var
mikið kapp í leiknum og langt á milli borganna. Inni var á móts við
Guðnahús markað með tveim steinum, borg og sussu, en útiborgin var
stór steinn á móts við innri enda samkomuhússins. Þessir steinar voru
141