Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1979, Síða 57

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1979, Síða 57
Frá hlýðni um efa til uppreisnar sættir heldur reynir að fá lesendur til að efast um viðtekin gildi. Efast um það til dæmis að foreldrar hafi alltaf rétt til að ráðskast með líf barna sinna og haldið fram rétti unglinganna til að taka sínar ákvarðanir sjálfir. Guðjón Sveinsson skrifaði strax 1972 söguna Ort rennur æskublóð, um drenginn Loga sem veit að stjórnsemi foreldranna hefur þegar eyðilagt líf bróður hans og vill ekki að eins fari fyrir sér. Hann stingur af til sjós, og þótt sjómennskan reynist ekki eins mikið grín og hann hélt, er hún honum leið til frelsis. Hann er sinn eigin herra þegar heim kemur. Krítískt raunsæi í unglingabókum bar annan ávöxt og ennþá betri í Búrinu eftir Olgu Guðrúnu Arnadóttur, sögunni um stúlkuna Ilmi sem sprengir af sér fjötra heimilis og skóla þegar hún finnur að þeir eru að verða henni helfjötrar. Báðar þessar bækur hafa þá innri spennu sem er nauðsynleg til að unglingar haldi sér vakandi yfir þeim og gefa þeim líka meira umhugsunarefni en bækur sem ekkert reynast annað en innantómur hasar. Af unglingabókum á þessum áratug eru þær hinar einu sem benda á götuna fram eftir veg, en auk þeirra verður að minna á bækur Péturs Gunnarssonar um Andra Haraldsson, einkum þó Eg um mig frá mér til mín (1978), þótt þær séu ekki skrifaðar fyrir unglinga sérstaklega. Þær eru mikill fengur í umbrotum unglingsáranna. Fyrsta íslenska barnabókin sem sýndi yngri börnum annan hugsunarhátt en þau eru vön var lítið kver með handskrifuðum texta og hét Alí flug- vélaræningi (1973), skrifuð af hópi ungs fólks í Neskaupstað, Magga, Messí, Pétri og Siggu (og tileinkuð Olgu Guðrúnu). Bókin var sumpart grín, sumpart háalvara, því hún sýnir lesandanum að það megi sjá „vont“ fólk í góðu Ijósi, það séu tvær hliðar á hverju máli þótt önnur hyllist til að snúa svo Iengi að manni að maður trúi á hana eina. Guðrún Helgadóttir tók upp gagnrýna umræðu í seinni bókinni um tvíburana sína, en hún gengur mun lengra í þessa átt í síðari bókum sínum tveim, í afahúsi (1976) og Páli Vilhjálmssyni (1977). Hún vekur lesanda til umhugsunar um ýmis mál, og sýnir að svör hinna fullorðnu eru ekki einhlít. Þrjátíu og sex ára gamall maður hálshöggvinn í Frakklandi, las Palli. Osköp eru að heyra þetta, sagði Aðalbjörg. Hvað ertu að segja barn? Ný sprengja er komin fram, las Palli. Sprengja þessi eyðir öllu lífi í ákveðinni fjarlægð, en lætur mannvirki óskemmd, las Palli. Hvað ertu að lesa þennan óþverra! sagði Aðalbjörg. Börn eiga ekki að lesa svona lagað. 183
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.