Tímarit Máls og menningar - 01.06.1979, Page 86
Tímarit Máls og menningar
Borgaralegar barnabækur kenna einstaklingum um allan vanda, skella
skuldinni á dugleysi einstakra manna og mannvonsku. Á móti þeim gemm
við bent á sósíalískar barnabækur sem skýra vandann samfélagslega, benda
á móthverfur og ranglæti.
I dag eru 5000 manns í verkfalli í Gautaborg, hér við bæjardyrnar hjá
okkur. Þeir eru að mórmæla launalækkun. Fimmþúsund manns - það er
mikið afl, en enginn unglingabókahöfundur er þar nærri til að lýsa því
sem gerist. Eg hef það á tilfinningunni að við séum alltaf á vitlausum stað
þegar við leimm að efni í bækur okkar.
Fyrsta skylda rithöfundarins er að mennta sjálfan sig og fylgjast með
því sem er að gerast í þjóðlífinu. En hann verður líka að vera skynugri en
annað fólk - hann verður að leysa vanda samtímans.
Við höfum enga þörf fyrir pípulagningamann sem getur lýst því fjálg-
lega hvernig allt er á floti í kjallaranum en veit ekkert hvernig lekinn
verður stöðvaður svo flóðinu linni. Leyndardómurinn er í því fólginn að
sjá félagslegar hliðar einstaklingsvandans, skýra þær og leysa vandann á
félagslegan hátt. Næsta skref verður svo að skrifa um fleira fólk, segja frá
verkafólki í staðinn fyrir miðstéttarfólki sem við erum alltaf að skrifa um.
Áður en maður getur kennt fólkinu verður maður að fara sjálfur og
læra af fólkinu, sagði Maó Tse Tung.
Við óskum þess að eignast fleiri rithöfunda úr verkamannastétt, við
höfum þörf fyrir marga slíka. En við höfum líka mörg lært eitthvað og
kunnum að segja frá. Við gefum skýrslur um líf unglinga og um fortíð-
ina — af hverju segjum við ekki líka frá atvinnulífinu og pólitískri baráttu
sem leiðir til einhvers?
Helmingur sænskra bókmennta kemur nú út í fjöldaframleiddum kiljum
— og þá er ég að tala um titla; ef við reiknum út upplagið verður munur-
inn meiri. Og B. Wahlströms er stærsti bókmenntakiljuútgefandi á land-
inu. Það er skömm að því.
Á hverjum degi eru seld 100 000 hasarblöð í blaðasjoppum, og Bonn-
iers hefur einkaleyfi á hasarblöðum. Það er líka skömm að því.
Drjúgur þáttur í baráttunni við vitundariðnaðinn hlýtur að vera að
skrifa betri bækur, sem taka sér eindregnari stöðu með lágstéttarbörnum
en bækur sem við skrifum núna. En það er ekki hægt að sigra vitundar-
iðnaðinn með almennum yfirlýsingum. Það er ekki hægt að leggja hann
niður með lögum að ofan.
212