Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1979, Page 100

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1979, Page 100
Gerður G. Óskarsdóttir Tengsl skóla og atvinnulífs 1.0 Hugleiðingar um skólann í samfélaginu. Ohætt er að fullyrða að þróun skóla hér á landi hefur ekki haldist í hendur við hina öru þróun þjóðfélagsins. Skólinn stóð í stað áratugum saman, en á síðustu árum hefur þó orðið breyting þar á; allmikil umræða hefur risið upp, einkum meðal skólamanna, og athyglisverðum umbótum er verið að hrinda af stað á mörgum sviðum skólastarfsins. Skólabyggingarnar hafa fremur verið í takt við tímann en starfið sjálft, nýju skólahúsin eru ekki síður nýtískuleg en aðrar byggingar sem reistar eru, þar hefur framþróuninni verið fylgt. En skóli er ekki skólahús, hann er nemendurnir, starfsliðið og sú vinna sem þessir hópar inna af hendi. Það starf getur alveg eins farið fram utan veggja skólahússins og innan þess. 1.1. Skólinn er lokuð stofnun. Skólar okkar eru í harla litlum tengslum við umhverfi sitt. Fram að þessu hafa þeir verið lokaðar stofnanir. Starfið fer fram innan fjögurra veggja og fáir utan nemenda og kennara hafa þar nokkra innsýn. Þetta stafar m. a. af því að áhugi almennings á skólamálum er lítill í landinu og vanrækt hefur verið af hálfu skólanna að kynna sitt innra starf. Aukinn áhugi á skólamálum yrði án efa hvatning til bættra vinnubragða. Það ætti að vera fastur þáttur í uppeldishlutverki allra foreldra að vera í stöðugum tengsl- um við skólann, fylgjast með starfinu og helst að hafa tækifæri til að hafa áhrif á ákveðna þætti í stefnu hans og störfum. Skólarnir þurfa sjálfir að vekja á sér athygli, opna dyr sínar foreldrum og ráðamönnum og ekki síst færa starf sitt eins og unnt er út fyrir skóla- húsið og gera sem flesta virka í því uppeldisstarfi sem skólarnir vinna. En hvernig verður það gert? Lausnin hlýtur að tengjast þeim markmiðum sem við setjum okkur með skólastarfinu. 226
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.