Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Page 96

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Page 96
Umsagnir um bækur HUGLEIÐINGAR UM STÖÐNUN Ólafur Haukur Símonarsson: Vík milli vina, Mál og menning 1983. „Nú er tími endurfæðíngar og hjálp- ræðis,“ (8) segir völvan, samferðakona Péturs, sem fór utan til Kaupmanna- hafnar til að skrifa bók um þá tíma þegar „Lífið var endalaus sprenghlægilegur draumur í litum á breiðtjaldi með sögu- þræði sem breiddi úr sér eftir þörfum og hentugleikum" (179), þegar sósíalisminn og kapítalisminn voru ekki orðnar „tvær hliðar á sömu sviknu myntinni!“ (202) og „allir höfðu á tilfinníngunni að tím- arnir væru að breytast og ekkert gæti mögulega fallið aftur í gamla farveginn." (78). Þau höfðu farið til Kaupmannahafnar á þessum árum til náms, klíkan svokall- aða, þar sem fastastjörnurnar voru Pétur og Halldór sem í kringum snerust Ing- unn, Guðrún, Aðalbjörg, Marteinn og síðar Hjördís. Fjarlægari fylgihnettir voru Kári og Hafliði. Veröldin beið með útbreiddan faðminn, og þau voru þess fullviss að þau hlytu að vera „fyrsta kynslóðin í nýjum og betri heimi." (78). En nú í sögubyrjun er Pétur á heim- leið eftir þriggja mánaða útivist. Þegar allt kom til alls sá hann ekki ástæðu til að skrifa þá bók. „Kannski hefur það sem við sögðum og gerðum ekki verið eins merkilegt og ég hélt.“ (19). Þess í stað leggur hann fram aðra bók, bókina um „þetta glæsilega, velmenntaða og andríka bráðum miðaldra únga fólk“ (95), sem hefur lokað öllum dyrum og reynir að gleyma hvað er fyrir utan af því að draumar þeirra og vonir gengu ekki eftir. Sagan Vík milli vina spinnst milli þess- ara tveggja heima, þá og nú, og tengist yfir í heim eldri kynslóðar í gegnum foreldra og fósturforeldra klíkunnar, þó sá munur verði kannski hvergi eins skarpur og til stóð, nema ef til vill í guðstrú Salóme, móður Guðrúnar. En þetta er fyrst og fremst saga klíkunnar, saga þessa róttæka fólks á „vinstri" væng, sem er fast í fúafeni stöðnunar og andlegrar kreppu með augu læst í fortíð. Hvers vegna fór það svo? Sagan byrjar að morgni föstudags og lýkur aðfaranótt sunnudags og liggur í gegnum spádóm völvunnar í upphafi þókar: „Hetjan okkar stendur andspæn- is grenjandi ljóni og þekkir skyndilega sinn eigin skugga . . . hetjan okkar verð- ur að takast á við sinn eigin skugga . . . friða hina stríðandi aðila, koma á jafn- vægi. En til þess að það megi takast verður hún að finna þann kraft sem getur endurvakið von hennar og trú.“ (8). Og hver er sá kraftur? „Dauðinn,“ er svar völvunnar (9). Það er utan um þennan spádóm 214
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.