Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Side 100

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Side 100
Tímarit Máls og menningar sem hann skrýddist, „Það var einfald- lega einhver undarleg blanda af fjöru- og fjósalykt sem fylgdi honum.“ (114). Hann er eins og Pétur úr alþýðustétt, og hann verður það jarðsamband sem Pétur og þá um leið klíkuna vantar þegar ljóst var orðið „að hann væri ekki og mundi aldrei verða skáld . . . og hefði engan metnað í þá veru.“ (115). Og það sem mikilvægast er, hann kann að hlusta. Hann verður því klíkunni ómissandi, einkum Pétri og Halldóri sem „létu ræðuhöldin óspart bylja á þessum þolin- móða hlustanda.“ (37). Þessi hópur verður eina fólkið fyrir utan systkini hans sem Marteini þykir vænt um þótt hann sé ekki blindur á galla þeirra og geti verið fastur fyrir ef því er að skipta. (118). En með tímanum rofna fjöl- skyldutengslin, það er eins og opnist gjá milli Marteins og fjölskyldu hans, „gjá sem átti eftir að breikka næstu árin og verða að óbrúandi gapi.“ (120). I hennar stað kemur klíkan. Hann verður eftir- læti hennar og óskabarn. Halldór og Pétur tóku að sér stjórnina og reyndu að byggja upp hjá honum sjálfstraustið, en stúlkurnar fæddu hann og klæddu og kenndu góða siði. En nú er klíkan ekki lengur sú sama. Ingunn og Pétur hafa brugðist honum; hann hringsólar um borgina aftur á bak og áfram í örvænt- ingu, og leitar loks á vit Halldórs, vinar síns. En það eina sem hann fær er enda- laus orðaflaumur og upprifjun þeirra tíma sem gera nútíðina enn sárari. A vissan hátt renna þeir saman í huga mér Halldór og Pétur. Halldór verður einhvers konar málpípa Péturs með stöðugu blaðri sínu, þótt með fyrirvör- um sé (t. d. 49, 79). „Eg ætla að verða heimsfrægt skáld,“ segir Halldór í æsku. „Eg er að hugsa um að fara í arkítektúr," segir Pétur (92). Pétur varð skáld, Hall- dór arkítekt. Þótt þeir komi úr ólíku umhverfi þá sýna báðir sömu afstöðu til vinnu sinnar, og ekki síður til fólks al- mennt, kunningja, samstarfsmanna, tengdaforeldra, kvenna sinna og barna. Eina undantekningin er framkoma Pét- urs við Onnu, fósturmóður sína, sem er full mannlegrar hlýju (83 — 85, 93) öfugt við framkomu Halldórs við móður sína sem einkennist af sömu mannfyrirlitn- ingunni og eigingirninni og öll hans hegðun (20 — 24). Fyrir Ingunni bera þó báðir ákveðna virðingu. Báðir líta á sig sem snillinga þótt Pétur afneiti því í orði (92). Þá dreymdi stóra drauma sem ekki rættust í fyrstu lotu og þar með gáfust þeir upp. Pétri tókst loks að koma bók sinni út, hún fékk góða dóma, en seldist illa. En veröldin fór ekki á hvolf, þar með var hann hættur og fór þess í stað í blaðamennsku. Sama er um Halldór. Lýðurinn skynjar ekki snilld hans sem arkítekts, og látið er að því liggja að Kári, fyrrum meðeigandi hans í teikni- stofunni, hafi haldið Halldóri niðri og keypt hann út úr fyrirtækinu sem hann hafi verið að gera gjaldþrota með list- rænum metnaði sínum. Pétur og Hall- dór hata báðir meðalmennskuna eins og Satan sjálfan, en hafa í reynd tekið upp alla háttu hinnar menntuðu millistéttar, sem kitlar uppþornaðar uppreisnar- kenndir með fylliríi, framhjáhaldi eða öðrum smáuppákomum eins og slagsmálum eða að keyra fullur og lenda í eltingarleik við lögguna. Kára er stillt upp sem andstæðu Péturs og Halldórs, manninum sem gengur Mammoni á hönd. Hann hefur auðgast vel, aðlagað sig því kerfi sem hinir fyrirlíta svo mjög. En í raun laga þeir sig allir að þessu kerfi. Mannfyrirlitning Péturs og Hall- dórs, beiskja þeirra og vonleysi byggjast á því að þeir eru misheppnaðir sam- 218
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.