Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Síða 32

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Síða 32
Tímarit Máls og menningar legt táknmál af svipuðu tagi og menn hafa jafnvel með góðum rökum túlkað franska garða 17. og 18. aldarinnar sem merki um viðhorf manna á þessum tíma til náttúrunnar.3) Þessi rannsókn er gjarnan margþætt, því ekki nægir að skilgreina reglur, sem ráða merkjunum og „gefa þeim merkingu" eins og verið væri að setja fram málfræði lifandi tungumáls, heldur verður líka að afmarka „héruð“, ef svo má segja, í „heimi merkjanna“, — þ. e. a. s. afmarka ákveðna heild „spora", sem er þá gjarnan kölluð „corpus“, og rannsaka uppbyggingu hennar, samfléttun hinna ýmsu þátta, tíðni þeirra o. þ. h. Einfalt dæmi um slíkan „corpus“ er safn skyldra rita frá sama tímabili, — t. d. mætti segja að íslendingasögur í heild séu skýrt afmarkaður „corpus“. Annað dæmi ger- ólíkt eru Etrúskaspeglar frá síðustu öldum fyrir Krist með myndum ristum á bakhliðina: allt þetta samstæða og fjölbreytta myndefni (fundist hafa 1500—2000 speglar af þessu tagi) sýnir hvernig Etrúskar túlkuðu og tileink- uðu sér gríska goðafræði og hverju þeir höfðu einkum áhuga á. I rannsókn- um sínum á „afkristnun“ í Suður-Frakklandi á 18. öld kannar Michel Vovelle „corpus“ erfðaskráa frá Provence-héraði. Philippe Ariés athugar hins vegar „corpus" grafreitalistar (lágmyndir á legsteinum, styttur og slíkt) í rannsóknum sínum á viðhorfum Vesturlandabúa til dauðans. Þessi margþætta rannsókn á „heimi merkjanna" má þó aldrei „svífa í lausu lofti“, heldur verður líka að kanna skilyrðin fyrir því að merkin geti borist manna á milli á hverjum tíma. A því eru ýmsar hliðar: nauðsynlegt er að rannsaka hvernig menn komast í kynni við merkjakerfin í bernsku, þ. e. a. s. uppeldi, skóla og slíkt, og svo verður líka að taka til athugunar hvernig merkin breiðast út. A fyrri öldum höfðu ekki aðeins skólar stórt hlutverk í þeim efnum, heldur líka konungshirðir og klaustur: „alþjóða- stofnun" eins og sistersíanska reglan breiddi út í Evrópu á 12. öld alveg sérstakan byggingarstíl svo og vissa tegund guðrækilegra bókmennta. En merki breiddust líka út í kringum kaupstefnur, pílagrímsferðir (sem fylgdu ákveðnum leiðum í gegnum stóra hluta Vestur-Evrópu) o. þ. h. Loks verður að athuga samspil merkja og umhverfis: það hefur lítil áhrif að segja draugasögu á markaðstorgi í Orléans á annatíma eða lýsa bellibrögðum kvennaþjófa með klóróformklúta í skíðaskála á reginfjöllum . . . Lucien Febvre og fleiri sagnfræðingar í kjölfar hans hafa lýst ýmsum þáttum í lífskjörum fyrri alda — varnarleysi gegn kulda og myrkri, sultartímum sem enduðu kannske í óskaplegu ofáti, giftingum unglinga, óskaplegum barna- dauða o. s. frv. — sem gerðu allar andstæður miklu skarpari og höfðu í för með sér að merki fengu annað gildi og menn voru móttækilegir fyrir þeim á annan hátt en nú myndi vera. I þessari skilgreiningu viðfangsefnisins og aðferðum til að fást við það er 430
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.