Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Page 46

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Page 46
Tímarit Máls og menningar háskalegt við uppeldisaðferðir hennar; því ef skyggnst er lengra aftur í tímann, til fyrri hluta 18. aldar, verður ekki betur séð en þessar aðferðir hafi verið almennt viðurkenndar, jafnt af yfirvöldum sem almúga. Það er því þessi hefðbundni skilningur á því hvað væri normalt barnaeldi fremur en hin nýja skilgreining upplýsingarmanna á þessu sama sem þarfnast skýr- ingar. III Það torveldar skýringartilraunir í þessa veru að þekking okkar á uppeldis- venjum fyrir upplýsingartímann byggist að mestu á heimildum sem sjálf upplýsingarherferðin hefur skilið eftir sig. Þetta er eitt af mörgum dæmum um að hversdagsleg menningareinkenni koma ekki fram í heimildum fyrr en þau taka að breytast. Meðan siðvenjan er óumdeild, er hætt við að hún skilji ekki eftir sig nein spor. Helstu heimildir um uppeldisaðferðir almennings og viðhorf eru eflaust dagbækur og sjálfsævisögur. (Pollock 1983:68—77) Gallinn er sá að fáar slíkar hafa varðveist frá tímabilinu fyrir 1800. Flestar þeirra sem hafa varðveist eiga auk þess rót að rekja til efri laga þjóðfélagsins. En að því marki sem slíkar frásagnarheimildir eru tiltækar, liggur beint við að nota þær til að sannprófa tilgátur sem byggjast á heimildum af hugmyndafræði- legum toga, t. d. skýrslum embættismanna. Tvö dæmi má taka úr skýrslum til að skýra þann túlkunarvanda sem hér er til umræðu. Bæði eru sótt í áðurnefndar rannsóknir á eldi ungbarna og ungbarnadauða. Héraðslæknirinn í Nedertorneá lýsir ástandinu á eftirfarandi hátt í skýrslu sem hann sendi heilbrigðisráðuneytinu 1840: Enga hef ég séð meðhöndla börn sín af jafnmiklu ástleysi og Finna. Daginn út og inn liggja þau og arga í vöggunni, húðlaus af vanþrifum og óværu án þess að nokkur skipti sér af þeim. Þau fá aldrei móðurmjólk ef móðirin getur útvegað aðra fæðu handa þeim, þess í stað er þeim gefin þykk og seigfljótandi súrmjólk í sóðalegum dúsum sem eru aldrei þvegnar. (Brándström og Sundin 1983:218) í annarri skýrslu frá dönskum lækni, P. A. Schleisner, um heilbrigðisástand á Islandi upp úr 1840 má lesa: Sérkennilegt ungbarnaeldi tíðkast enn á íslandi [í því fólgið að ungbörnum er gefin kúamjólk í stað brjóstamjólkur], sem ég get ekki 444
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.