Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Page 80

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Page 80
Tímarit Máls og menningar drengskapar. Um Gísla er ofinn örlagavefur, sem honum er um megn að losa sig úr. Vel má ætla að hann fléttist inn í drauma hans. Væri þá vonda draumkonan hin sárt leikna systir hans? Slíkt er aðeins tilgáta sem vantar skýran rökstuðning. Víst er þó að þegar váboðadraumar taka að sækja fast á Gísla, hefir geð hans truflast. Þá röskun mætti að vísu skýra með hungri, einsemd og öryggisleysi, sem hann hefir mátt þola í útlegðinni. Samt gæti nagandi sjálfsásökun aukið þar á. Hefði hann ekki getað fengið drengilegra færi á Þorgrími en að vega hann sofandi í hvílu systur sinnar? Hvernig sem þetta ber að skilja, þá kemur ásókn draumkonunnar grimmu ekki aðvífandi utan frá. Hún býr í brjósti útlagans sjálfs. Og það á við um draumfarir yfirleitt. Menn dreymir það sem bærist, meðvitað eða dulvitað, í huga dreymandans. Það er sú heildarályktun sem draga verður af framan- skráðri könnun. Hins vegar er sú trú rótgróin með þjóðinni, að draumar séu utanaðkomandi vitrun, sérstæð boðun óorðinna atburða, sem ekki sé unnt að öðlast vitneskju um á annan hátt. En má ég spyrja? Hver hefir þá vitneskju til reiðu, áður en hún birtist í draumnum? Stendur einhver alvizkuvera, e. t. v. ættuð frá öðrum tilverustigum, á bak við dreymandann og læðir draumefninu inn í svefnvitund hans? Um þetta hafa furðulegar kenningar verið bornar fram. Við nánari athugun verður þó ljóst, að þær gera ekki annað en flytja vandann yfir á ímyndað tilverustig, sem mannlegur rökskilningur nær ekki til. Mannsvitundin er í eðli sínu framsýn og fjarskyggn og þeirri hæfni glatar hún ekki með öllu í draumi, þótt henni séu þar að vísu miklu þrengri takmörk sett. Draumurinn sprettur ávallt af vitundarinntaki dreymandans og sýn hans til ókominna atburða nær aldrei lengra en geigur hans og grunur, þrár hans og vonir. Til þess að rökstyðja þessa staðhæfing verðum við að skoða afstöðu vit- undarinnar til tímans sem við skiptum í daglegu tali í fortíð, nútíð og fram- tíð. I fræðilegri merkingu er nútíð aðeins sekúndubrot, en í daglegri upplifun spannar hún þó yfir miklu lengra skeið, bæði tilbaka og framávið í atburða- rásinni. Atvikin sem við skynjum hverfa vitundinni ekki um leið og þau svífa yfir á svið hins liðna, vitandi og óvitandi berum við hið liðna með okkur, fortíð er mikils ráðandi í áformum okkar og gerðum, einnig þeim, sem teygja sig langt inn í ókomna tíð, sem verður á þann hátt röklegt framhald ferlarása, sem eiga uppsprettur sínar langt inn á öræfum fortíðar- innar. Hið óhöndlanlega vitsmunaleiftur, sem við nefnum nútíð, losar í svip um hina orsakabundnu ferlarás, og vitundarvilja verður frjálst að velja um kosti og taka ákvarðanir, sem binda nýjar atvikarásir langt fram á ókomna tíð. Þannig ferst og endurfæðist nútíðin í sífellu eða streymir eins og fljótið í 478
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.