Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Page 109

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Page 109
/ ágústlok bakkann. Það glampaði á rauð sóltjöldin, fólkið streymdi linnulaust framhjá, en það var þögult. Sama fólkið og áður sat fyrir framan Café de la Paix og það leit út eins og áður, en í kringum það var nú þögn. Þegar við komum að ferðaskrifstofunni staðnæmdist Winní og vildi ekki fara með mér inn. Einhverra hluta vegna vildi hún það ekki. „Þú getur farið inn og gengið frá þessu einn,“ sagði hún. Andartaki síðar kom ég aftur án þess að hafa gengið frá nokkru. „Ertu nú alve^ viss?“ sagði ég við hana. „Því við verðum að ákveða þetta núna. Eg heyrði manninn inni segja, að seinasta skipið til Esbjerg færi annað kvöld. Og í dag var þýsku landamærunum lokað. Ef við ætlum heim verðum við að taka lestina til Antwerpen í fyrramálið." Við stóðum stundarkorn þegjandi og horfðum hvort á annað. Yfir okkur var þögnin. Eg tók undir handlegginn á Winní og við gengum spölkorn. Það glampaði á rauð sóltjöldin. A torginu fyrir framan Café de la Paix sat sama fólkið og áður og leit út eins og áður. Það sat þögult eins og steingervingar, starði gegnum einglyrni og stangargleraugu inn í heim sem var dauður fyrir þúsundum ára. Og niðri í hliðargötunni stóð sama fólkið í sömu biðröðinni fyrir framan glerhurðina. Það stóð þögult og þolinmótt og beið þess að verða hleypt inn í hópum. Síðan kom það út um aðrar dyr með kringlóttu málmhylkin sín. Winní stóð kyrr og horfði á fólkið. Smám saman varð hún grá í framan og svo fór hún allt í einu að gráta. Hún grét hátt og taumlaust. „Æ, ég get það ekki,“ sagði hún hágrátandi, „ég get það ekki. Eg get það ekki.“ Hún hélt áfram að gráta og segja þetta. Þögult, ókunnugt fólk gekk framhjá og horfði á hana rétt sem snöggvast. Eins og það furðaði sig á því hversvegna hún stæði þarna grátandi. Eg fór inn og náði í tvo farmiða með síðasta skipinu frá Antwerpen. Þetta kvöld var París hálfmyrkvuð, og við gengum gegnum Montmartre og upp allar tröppurnar að Sacré-Cæur til að horfa á það. Við stóðum lengi þögul úti við varnarmúrinn. Djúpt fyrir neðan flöktu nokkrar ljóstýrur, en í fjarska hvelfdist þétt svartblátt myrkrið yfir sléttuna. 507
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.