Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Page 37

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Page 37
var hrundið upp — Norman Bates eða ekki Norman Bates, hver veit? Sá ég draug eða sá ég ekki draug? Efi, óáreiðanleiki, óskýranleg vá. Hvað sem því líður er ógnin oft æði ágeng og raunveruleg í hryllingskvikmyndum sein- ustu tveggja áratuga. Menn rísa langsoltnir úr gröfum sínum eða ummyndast í skepnur og skordýr, ólýsanlegar meinvættir losna úr læðingi: uppvakningar, blóðsugur og var- úlfar. Öll eiga þessi fyrirbæri sér fyrirmynd í draugnum sem er skilgetið afkvæmi Djöf- ulsins. Þau hafa brennt sig inn í vitund Vesturlandabúa, margfaldast og safnað formum, lifað nýtt blómaskeið í kvikmynd- um. Þannig munu frægustu hrollvekjur 19. aldar — Frankenstein eftir Mary Shelley, Dr. Jekyl and Mr. Hyde eftir Stevenson og Dracula eftir Abraham Stoker—oftar hafa verið festar á filmu en sögur úr Heilagri ritningu. Djöfullinn veit hvað hann syngur; hvemig komast má að hugum manna, hvar þeir eru vamarlausastir fyrir! Hrollvekjan fellir ótta manna í mynstur orða og mynda: það sem þeir hræðast mest á hverjum tíma. Hafa ber hugfast að óttinn er bundinn sögulegum skilyrðum líkt og hláturinn; það sem ein kynslóð skelfist öðm fremur lætur aðra ósnortna, og þarf ekki áratugi til heldur ólík þroskaskeið í lífi ein- staklings. Það er því nauðsynlegt að hafa menningarlegt samhengi í huga þegar rætt er um óttann og einstök birtingarform hans: hver er sá sem hræðist, hvað skelfist hann og af hverjul Sé horft til baka er eins og djúpstæð umskipti hafi átt sér stað á 6. áratugnum. Fram að þeim tíma einkennd- ist hryllingskvikmyndin af töluverðri bjart- sýni og trú á manninn. Þannig var brugðist við hryllingnum með kunnáttu og/eða valdi — hann var felldur á eigin vitneskju eða honum útrýmt með ofbeldi. Stríðinu lauk með mennskum sigri. í heimi þessarar hrollvekju skiptir mannleg athöfn máli; þetta er öruggur heimur þegar allt kemur til alls. Við vitum að truflunin er tímabundið ástand — að maðurinn kemst undan um síðir; raunverulegur efi kemst ekki að. A 6. áratugnum breyttist þetta með róttækum hætti; kalda stríðið ól af sér nöturlega svartsýni enda sáu menn vísindalega þekk- ingu í öðru ljósi en áður. Á þeim tíma er eins og kennd veikleika og vanmáttar hafi orðið ríkjandi í hryllingskvikmyndum; mannleg athöfn glataði merkingu sinni — ógnin varð óviðráðanleg. Þessi þróun kemur skýrt fram í innrásar- myndum af ýmsu tagi. Innan þeirra var áður fyrr gerður skarpur greinarmunur á tveimur heimum; eðlilegri veröld fólks sem vinnur frá degi til dags, eignast böm og myndar fjölskyldur, var stefnt gegn tryllingslegum heimi ómennskra skrímsla — afskræmdu efni, öfugsnúnu kynferði, skefjalausu blóð- baði. Framan af var þetta form „lokað“, þ.e. ófreskjunni var útrýmt eða hún rekin burt úr mannheimi — mannlegur máttur fór með sigur af hólmi. Á seinni árum hefur sniðið hins vegar „opnast“ í æ ríkari mæli: gefið er í skyn að ófreskjan sé ósigruð eða að innrásin hefjist á nýjan leik — sögu- hetjan breytist í blóðsugu eða líkamning, ellegar afkvæmi skrímslisins lítur dagsins ljós. Þegar best lætur tekst persónunum að flýja eins og í The Amityville Horror (1980); þegar verst lætur tekst þeim það alls ekki og heimsendir virðist vera óhjákvæmi- legur. Hryllingurinn gegnumsmýgur til- veru manna án þess að þeir geti brugðist til vamar á árangursríkan hátt. Það kemur skýrt fram í hamskiptamyndum sem fjölg- að hefur mjög síðustu árin. I Night of the TMM 1991:1 27
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.