Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Side 86

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Side 86
sjálfur stóð hann að nokkru utan við kerfið, hann var rithöfundur á markaði, sem nánast var ný starfsgrein um þessar mundir, hann bjó erlendis og þar við bættist upplausnin í hjónabandinu sem kom róti á sýn hans á samskipti kynjanna. Hann fann ekki hljóm- grunn hjá hástéttum og naut einskis úr skriðdýrasjóðum þeirra (sem hann nefnir sjálfur svo í kverinu); hans framtíðarmark- aður byggðist á miðstétt og lágstétt. Félagsleg róttækni Strindbergs verður einnig skilin sem skynsemishyggja. Hann hafnaði trúarbrögðum á líkum forsendum og Voltaire og Feuerbach áður, út frá sjónar- miði efnishyggju og af því að kennisetning- ar kirkjunnar stríddu gegn skynseminni. Trú hans á fræðslu og skynsemi birtist með- al annars í því að hann setur hugmyndir sínar fram í formi spuminga og svara, líkt og gert hafði verið í kennslubókum allt frá miðöldum. En skynsemistrú hans á sér þó ákveðin takmörk; hann álítur nefnilega að hagsmunir verði skynsemi og réttlæti yfir- sterkari þegar allt komi til alls. Sá sterki verður talinn hafa á réttu að standa, bylting er talin lögleg hafi hún heppnast, eins og segir í kverinu. Þar er eins og Darwin og Nietzsche grípi fram í fyrir Marx. Strind- berg trúði á „hinn sterkari“, sjálfur var hann sterkur og vissi það þótt efinn hafi löngum knúið dyra; honum var afar ósýnt um að mjúklæta sig og fyrirleit þrælslund svo mjög að stundum virðist sjúklegt. * Þó að róttækur sósíalismi eigi dvínandi fylgi að fagna á Vesturlöndum sem stendur — meðal annars vegna þeirra atburða sem orðið hafa í Austur-Evrópu undanfarin tvö ár — er forvitnilegt og skemmtilegt að lesa stefnuskrá Strindbergs. Hún felur að nokkru leyti í sér heildstæða heimsmynd, sýnir hvemig róttækir menn upplifðu heim- inn fyrir um hundrað árum. Jafnframt er þessi texti sígild vakning og segir lesand- anum að hann megi ekki sofna í sjálfum- gleði menningarlegrar orðræðu: því óhagg- að stendur að í þjóðfélaginu togast á hags- munir, og valdið reynir alltaf að sýnast vin- gjamlegt og saklaust í lengstu lög. Þótt kenningar um ríkisrekstur og miðstýringu eigi nú undir högg að sækja er það megin- sjónarmið í fullu gildi að til að skilja verk manna nægir ekki að hlusta á eigin skýr- ingar þeirra. Maðurinn er fullur af sjálfs- blekkingum og skilur oft ekki sjálfur hvaða áhrif dulin öfl sálar og samfélags hafa á gerðir hans og vökuvitund. Og vel má vera að Strindberg geti ennþá hneykslað og ýtt við mönnum, rétt eins og hann gerði fyrir hundrað árum þegar hann vakti svo áköf viðbrögð á báða bóga. Einnig er vert að nefna að texti Strind- bergs hefur að geyma einhvem kraft, eitt- hvert afdráttarleysi og mælsku sem jafnan einkennir góða ádeilu. Þessum snarpa stíl áttu íslenskir lesendur eftir að kynnast hjá Þórbergi Þórðarsyni og Halldóri Laxness á þriðja áratug aldarinnar. í kverinu kapp- kostar Strindberg að skrifa ljósan stíl en jafnframt er hér sterkur fræðslublær, svo sem formið gefur tilefni til. Hér á eftir fylgja nokkur sýnishom úr Spumingakveri Strindbergs og nema þau rúmum fjórðungi kversins í heild. * Hvað er þjóðfélag? — Akveðnir lifnaðarhættir sem orðið hafa til á grundvelli þess markmiðs hástéttarinnar að halda lágstéttinni niðri. Það er leyndardómur- inn um þjóðfélagið. [...] 76 TMM 1991:1
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.