Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Side 94

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Side 94
gerist í þögn hugarins. Henni tekst að flétta saman orðum og hugsun, ytri veruleika og innri, sýnd og reynd, í órofa heild andar- takanna sem mynda okkar æviskeið. Árið 1983 gaf Nathalie Sarraute út bók um bemskuár sín. Hún heitir Enfance sem merkir einfaldlega „Bemska“.4 Hún hafði aldrei áður fjallað um sjálfa sig í verkum sínum, jafnvel ekki í dulargervi, eins og höfundar gera gjaman, en nú var eins og hún væri knúin til þess. Af hverju? Ef til vill var það vegna þess að enginn bjóst við því af hennar hálfu. Ætlaði hún sem alla ævi hafði barist gegn klisjum, nú að falla í þá gryfju að þylja upp klisjur um bemsku- minningar sínar? Það var heldur ekki auð- velt að sjá hvemig hægt væri að tengja fyrri tilraunir hennar við ritun sjálfsævisögu. Verkefnið var ögrandi, en óhætt er að segja að hún hafi farið sínar eigin leiðir í þessu eins og öðm. Enfance fjallar aðeins um fyrstu tíu eða tólf ár ævinnar, frá því hún fyrst fer að muna eftir sér þangað til hún byrjar í gagnfræða- skóla. Bókin er byggð upp í formi sam- ræðna milli tveggja radda: hennar sjálfrar og tvífara hennar og gegnir önnur röddin því hlutverki að rifja upp endurminningam- ar en hin að vera sífellt á varðbergi gegn því að minnið svíki hana eða að hún falli í þá freistingu að skreyta minningamar með hugljúfri eða skondinni klisju. Eins og í skáldsögum sínum leitast Sarraute við að koma orðum að einhverju sem liggur utan við orðin, einhverju sem hefur ekki verið sagt. Hún er því ekki að rita samfellda frásögn, heldur hefur hún áhuga á að endur- vekja nokkur augnablik sem enn lifa í minningu hennar, augnablik sem enn hefur ekki verið „komið orðum yfir“ — eins og sagt er „að koma lögum yfir“ — og tilheyra því enn lífinu sjálfu en ekki heimi orðanna. Sarraute lætur lesandanum eftir að búa til samhengi þessara minningabrota, og því óþarfi að rekja söguna hér. Nægir að segja að hún snýst, eins og flestar bemskusögur, um samband bamsins við föður og móður og baráttu þess fyrir sjálfstæði sínu. Þó flækir það málið hjá Sarraute að foreldrar hennar skildu, móðir hennar neitaði að hafa hana hjá sér og litla stúlkan varð að búa með stjúpmóður sem var ófús að taka að sér barn annarrar konu. Sérstaklega er athyglisvert á hvem hátt Sarraute dregur fram hlutverk tungumáls- ins í lífi bamsins. Tungumálið er í senn tæki sem það getur notað til að ná valdi á um- hverfinu, og tæki annarra til að ná valdi á því. Fyrsta augnablikið sem Sarraute rifjar upp lýsir þessu vel. Hún er nokkurra ára gömul, hefur tekið sér skæri í hönd og hótar þýskri bamfóstru sinni að nú muni hún stinga oddinum á kaf í bólstrað stólbak. „Ich werde es zerreissen!“ — „Ég ætla að rífa þetta,“ segir hún. í raun em þessi orð ekkert annað en leið til að vekja á sér at- hygli, til að sýna barnfóstmnni að í henni býr lítill púki, sem getur beitt ofbeldi en sem hún hefur fullan hug á að halda í skefj- um. En í staðinn fyrir að segja „Já, já litla mín, þú gætir alveg rifið þetta, ef þú vildir, en auðvitað vilt þú vera góð stelpa, halda þér innan marka hins leyfilega, innan hringsins", segir bamfóstran þýska „Nein, das tust du nicht!“ „Nei! þetta gerir þú ekki“. í staðinn fyrir að friða litlu telpuna, í staðinn fyrir að hjálpa henni að eiga við hið ófélagslega í sjálfri sér, að láta púkann vinna í hennar þágu, troða þessi orð á púk- anum, bæla hann niður, fá hann til að rísa 84 TMM 1991:1
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.