Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Page 96

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Page 96
sem á íslensku mætti kalla rennandi skrift, flæðiskrift eða hlaupaskrift. Hún líkir henni við seglskútu sem vindurinn fleytir á ógnar- hraða yfir sæinn þannig að hún strýkst naumlega við öldutoppana og nær því að fanga jafnóðum það sem rís skyndilega úr sálardjúpinu.5 Eins og Sarraute er Marguer- ite Duras einnig að fást við augnablikið: sannleikann um mannlega tilveru sem kristallast í augnabliki ástríðunnar. Árið 1984 kom L’Amant út eða Elsk- huginn eins og bókin heitir í þýðingu Hall- fríðar Jakobsdóttur.6 Marguerite Duras hefur ávallt þótt erfiður höfundur og aðeins fyrir fámennan hóp sérvitringa að hafa áhuga á henni, hvað þá að skilja hana. Þess vegna kom það mjög á óvart hvað bók hennar hlaut fádæma góðar viðtökur ekki aðeins í Frakklandi heldur víðar. Þegar síð- ast frétti hafði hún selst í meira en tveimur milljónum eintaka um heim allan og gæti þessi tala brátt margfaldast því kvikmynda- leikstjórinn Jean-Jacques Annaud, höfund- urinn að Leitinni að eldinum, Nafni rósarinnar og Birninum, meðal annarra kvikmynda, ætlar að gera úr henni stór- mynd. L’Amant er einkennileg bók. Hún er sjálfsævisöguleg og fjallar um ástarsam- band sem Duras segist hafa átt í við kín- verskan auðkýfing í Saigon þegar hún var aðeins fimmtán ára gömul. Hann elskar þetta litla hvíta stúlkubam ákaflega heitt en hún heldur því alltaf fram að hún sé aðeins að þessu til þess að fá peninga hjá honum til að bjarga fjölskyldu sinni. Kínverjinn gæti vel hugsað sér að eiga hana en má það ekki út af ströngum siðareglum ættar sinnar sem bannar honum að giftast nema óspjall- aðri mey. Raunar er ættmenni hans fyrir löngu búin að velja honum kvonfang. Samband þeirra er hneyksli: hún er allt of ung og auk þess er samræði fólks af ólíkum kynstofni fordæmt á þessum nýlendutím- um, einkum ef kvenmaðurinn er hvítur. Duras er alveg sama því vegna skulda og gjaldþrots stendur fjölskylda hennar hvort sem er utan við samfélag hvítra manna. Þau hittast í íbúð í fátækrahverfi Saigon og elsk- ast í þrúgandi andrúmslofti hitabeltisins. Eftir óákveðinn tíma, eitt til tvö ár, verða þau að skilja. Duras fer til náms í Frakk- landi en Kínverjinn kvæntist heitmey sinni. Þessi einkennilega saga, sem minnir reyndar um margt á söguna af Rómeó og Júlíu, liggur eins og rauður þráður í gegnum bókina en tekur ekki nema einn fimmta af því lesmáli sem í henni er. Afgangurinn er settur saman úr meira eða minna sundur- lausum minningabrotum: um móður henn- ar og harma hennar, um eldri bróðurinn sem var eftirlæti móður sinnar en kúgaði syst- kini sín, nauðgaði vinnukonunni og rændi fjölskyldumeðlimi; um yngri bróðurinn sem Duras þótti svo óumræðilega vænt um að þegar hann dó, nokkrum árum eftir að hún fluttist til Frakklands, vildi hún sjálf deyja. Einnig minningar um fólk sem hún þekkti, vinkonuna sem henni þótti svo fal- leg, flökkukerlinguna frá Kambódíu með veika bamið, konu embættismannsins sem hafði átt elskhuga sem fyrirfór sér, minn- ingar um föt sem hún klæddist á þessum árum, um hatt sem hún átti, um ferðalög á millilandaskipum, o.s.frv. Ekki er auðvelt að sjá á hvem hátt þessi minningabrot koma sögunni af kínverska elskhuganum við. Samt er eins og Duras sé að reyna að segja okkur eitthvað með þessu öllu saman. En hvað? Ef til vill kemur okkur á sporið, það sem Alain Robbe-Grillet sagði í erindi sem hann 86 TMM 1991:1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.