Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Page 99

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Page 99
það sem öðrum dytti síst í hug að tengja — ekki ósvipað og Erró gerir í myndverkum sínum. Með þessu móti hyggst hann taka í sundur það merkingarkerfi sem maðurinn hefur smíðað sér um heiminn og kemur í veg fyrir að hann sjái veruleikann eins og hann er í raun. Sjálfur líkir hann höfundar- starfi sínu við könnun á ókunnum heims- álfum og sjálfum sér við illa vopnaðan, fyrirhyggjulausan en ákveðinn landkönn- uð, sem trúir hvorki á fyrri tilveru landsins sem hann er að kanna né á varanlega tilveru þess, en teiknar samt upp dag eftir dag mögulegar leiðir yfir það.11 Á síðustu árum hafa endurminningar Robbe-Grillet verið að koma út: fyrsta bindið 1984 og heitir Le miroir qui revient, „Spegillinn sem kemur aftur“, annað bindið 1988 og heitir Angélique ou l’enchante- ment, „Angélique eða töframir“. Þriðja bindið er enn ókomið en á að heita La Mort de Corinthe eða „Dauði Kórinþu“. Safnið heitir í heild Romanesques sem þýðir „af skáldsögulegum toga“. Þetta segir sitthvað um þessa ritsmíð hans því í henni blandast saman endurminningar og vangaveltur um bókmenntir og listir, skáldskapur og raun- veruleiki, staðreyndir og órar, þannig að oft veit lesandinn ekki hverju hann á að trúa og hverju ekki, og er það ábyggilega með vilja gert hjá höfundinum. í fyrsta bindinu, „Speglinum sem kemur aftur“, segir Robbe-Grillet meðal annars frá bemsku sinni, sambandinu við föður sinn og móður, hægrisinnuðum stjórnmálaskoð- unum foreldra sinna, æsku sinni á ámm seinni heimsstyrjaldarinnar og því þegar hann var sendur í nauðungarvinnu til Þýskalands. Einna athyglisverðast við þetta er að Robbe-Grillet gefur skýringu á því hvers vegna hann byrjaði að skrifa. Raunar segir hann að þetta sé skýring sem honum sé aðeins ljós núna og að hann hafi alls ekki verið sér meðvitaður um það þá. Foreldrar Robbe-Grillet vom hægrisinnar. Á árunum fyrir seinni heimsstyrjöld þýddi það að vera fylgjandi röð og reglu og andsnúinn þeim glundroða sem þingræðið leiddi af sér í augum hægri manna. Robbe-Grillet var góður sonur foreldra sinna og trúði á röð og reglu eins og þau. Þegar Þjóðverjar réðust á Frakkland árið 1940, og lögðu það fyrirhafnarlítið undir sig, þá dró fólk, eins og foreldrar Robbe- Grillet þá ályktun að röð og regla hefðu sigrað glundroðann. Þó þeim sámaði ósigur þjóðar sinnar þótti þeim eðlilegt að fylgja Pétain marskálki að málum en hann stjóm- aði hersetnu og undirgefnu Frakklandi. í nauðungarvinnunni í Þýskalandi fór Robbe-Grillet að gmna að einhverjar skuggahliðar væru á þessari aðdáunarverðu reglu sem Þjóðverjar höfðu á öllum hlutum. Þegar það kom svo í ljós að þeir höfðu stundað fjöldamorð á Gyðingum, Sígaun- um og samkynhneigðu fólki markaði það þáttaskil í lífi Robbe-Grillets. Upp frá því gat hann ekki lengur trúað á röð og reglu því glæpir nasista vom einmitt drýgðir í skjóli og nafni raðar og reglu. Eitt hið skelfilegasta við þessa glæpi er einmitt hve skipuleg framkvæmd þeirra var. Robbe-Grillet telur að andstæðurnar milli frelsis annars vegar og þarfar fyrir röð og reglu hins vegar búi í öllum, en það sé misjafnt á hvom þáttinn fólk leggi ríkari áherslu. Eftir að hann uppgötvaði glæpi nasista, breyttust áherslumar hjá honum. Hann setti kröfuna um frelsi á oddinn. Það kom ekki fram í pólítísku starfi, eins og hjá öðmm, heldur í nýstárlegum tilraunum með TMM 1991:1 89
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.