Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Page 71

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Page 71
Sœmilega vanur maður slœr a.m.k. helmingi meira með orfi og Ijá, jafnvel tífalt, á við þann sem stendur við vél- orfið. Hverjir eru þá kostir vélorfsins? þar sem land er grýtt; en aðalatriðið er kannski að það tekur styttri tíma að kenna og læra á vélorfið. Aðferðir skipta máli og því geri ég sláttu- amboð að umtalsefni að það er verið að eyðileggja fomar minjar í íslensku lands- lagi vegna þess að gömul amboð em ekki í heiðri höfð. Um allt land stendur kirkjan fyrir því að afmá hlaðin leiði, slétta úr leið- um í kirkjugörðum til þess að gera þá vél- tæka. Þetta er aðför að fomri hefð við að ganga frá gröfum, heiðra minningar. Vélguðinn er dýrkaður. Og vonlegt er að böm mglist í ríminu. Bam í Stykkishólmi spurði kennara sinn um daginn, þegar guð og almættið voru til umræðu: „Er guð vél- menni?“ „Nei, hann er andi og alls staðar,“ svaraði kennarinn. Drengurinn sópaði loft- ið með hendinni og sagði: „Kom ég við hann?“ „Nei, hann er ósnertanlegur og samt er hann hjá okkur og fylgist með öllu sem við gemm og stýrir lífi okkar.“ Og enn spurði blessað barnið: „Er hann þá með fjarstýringu?“ Kirkjugarðar eru hluti af sögu og menn- ingarlandslagi íslands. Þeir em helgir reitir. Samt eyðileggur kirkjan hvern garðinn á fætur öðmm. Hún lætur moka yfir, jafnvel rústa leiði bama og foreldra, ættingja og vina með tætara. Einhvem tíma hefðu þetta verið talin helgispjöll, skemmdarverk guð- lausra manna. Ennþá setjast menn á leiði, þar sem þau em, og láta hugann reika. Hugleiðsla er notalegri þar og það dásamlega við hlaðin leiði er að þau hafa töfra eins og lands- lagið. Þau em persónuleg. Þar hvílir ástin og sorgin og lífsblómið í eilífðinni. Gamall kirkjugarður sem er sléttaður er vanvirtur og tapar andlegum krafti sínum. Kmkk og kák í kirkjugörðum þarf að banna tafarlaust. Almenningur ætlast til þess að kirkjan sýni umburðarlyndi, skiln- ing og gott fordæmi. Það er dýrt að slétta kirkjugarða og ósmekklegt bæði frá sjónar- miði augans og gagnvart látnum og lif- andi. Nær væri að kirkjan héldi námskeið í því að hlaða leiði og í meðferð sláttuam- boða en að kynda undir dýrkun vélguðsins. Ekki var þetta fuglasöngur. Aftur til búsetunnar: Búseta er ekki aðeins það að eiga heima einhvers staðar og vinna þar. Hún er margþætt og tengist beint og óbeint lands- lagi og þá land- eða sjávargæðum. Búseta leggur mönnum mikla ábyrgð á herðar, ábyrgð á byggð og atvinnuháttum, meðferð á náttúm landsins, velferð barna og fullorð- inna, menntun almennings og menningu þjóðar. Skoðum nú mannvirki sem þátt í búsetu og hverfum fyrst til sögualdar. Þá er talið að menn hafi byggt stórhýsi sem rúmuðu allt að 200 manns. Þetta samsvarar meðal- stórri blokk nú á tímum. Þrátt fyrir stærð Krukk og kák í kirkjugörðum þarfað banna tafarlaust. TMM 1992:1 61
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.