Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Síða 85

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Síða 85
hverri bók opna nú ekki svo augun að of- beldi karla gegn konum blasi ekki við). Ég treysti mér að vísu ekki til að tala um alla strákana sem Helga og Ástráður tala um; Helga að vísu bara um einhverja suma en Ástráður nefnir nöfn Péturs Gunnars- sonar, Einars Más Guðmundssonar og Ein- ars Kárasonar, eins og þeir hafi allir skrifað mjög líkar bækur, bara af því að „strákar“ og „húmor“ koma fyrir í verkum þeirra. Ég minni á að Ólafur Kárason er strákur fram- an af sögu sinni þó að hann vaxi upp úr því, eins og gengur, og í Heimsljósi ber nokkuð á húmor án þess að sú bók verði eins og bækur þeirra þremenninga fyrir vikið. Vegna kenningarinnar um samsömun ungu karlkrítíkeranna við strákana í bókunum ætla ég bara að taka mið af sögum Einars Más af því að þær komast næst því að lýsa mínum æskuheimi, Voga- og Heimahverf- inu. Undanfarin ár hef ég líka sameinast hópi ungu karlgagnrýnendanna og því ætti kenningin um að velgengni bókanna stafi af því að við sjáum eitthvað af sjálfum okkur í þeim að eiga við um mig. Ég skal fúslega játa að ég á auðvelt með En það er jafnfráleitt að reyna aðfella þær allar und- ir þetta kerfi og hugsa sér að þjóðfélög heimsins séufyrst og fremst feðra/karlveldi og að átök bóka snúist œvinlega um ásinn konur-karlar. Það er ekki eina málið frekar en það er eina málið að við búum í auðvaldsþjóðfélagi að sjá sjálfan mig í þessum sögum. Ég upplifi mig í leikfimi í gamla Hálogalands- bragganum þegar ég les sögumar um svarta leikfimihúsið og finn endalausar ræður Helga skólastjóra í Vogaskóla dynja á sjálf- um mér þegar ég les um ræður skól astj óran s í hvíta skólanum. Þessi skýring á vinsæld- um (orðið „vinsældir" virðist hafa nei- kvæða skírskotun í margri bókmennta- umfjöllun, einkum hjá þeim sem halda að húmor og bókmenntir eigi litla samleið og tala því með nokkrum þjósti um „fyndnu kynslóðina") strákasagna Einars Más dugar hins vegar ekki til að skýra af hverju tengdafaðir minn, sem er uppalinn í norð- lenskri sveit, hefur líka gaman af sögum hans eða þá háöldruð amma mín, rúmlega níræð, sem ólst að vísu upp í Reykjavík. Það getur varla verið að þau sjái sig þarna meðal fólksins á síðunum. Til að stoppa upp í kenninguna er þó nærtækt að stinga upp á því að við tengdafeðgarnir séum karlmenn og það skýri dálæti okkar á sögunum en bókmenntasmekkur ömmu minnar sé of mótaður af karlrembu aldarinnar til að vera til marks um hina sönnu kvenvitund. Kann- ski erum við í einhverju tossabandalagi. En kannski er sá möguleiki líka fyrir hendi að sögusvið og efniviður sagnanna skipti ekki höfuðmáli, bara ef þær eru vel sagðar. Og úr því að ég hef tekið hér upp þráðinn frá Ástráði þá er rétt að staðnæmast við vangaveltur hans frá Helgu, sem Guð- mundur Andri tók ekki afstöðu til, að Jón Oddur og Jón Bjarni hafi hrint strákasagna- skriðunni af stað — og er þá átt við Andra- sögurnar, Riddara hringstigans og Djöflaeyjuna. Enda þótt Ástráður geti bent á samfellu í lestrarreynslu nemenda sinna á ákveðnum aldri, sem hafa lesið sögumar í þessari röð og þær myndi því ákveðna sam- TMM 1992:1 75
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.